Blaut bollakaka í örbylgjuofni



⌑ Samstarf ⌑
blaut súkkulaðikaka í bolla

Það hljómar alls ekki svo illa að geta útbúið ljúffenga súkkulaðiköku á fimm mínútum! Það er nefnilega vel hægt að baka í örbylgjuofninum og líka vel hægt að gera eins manns uppskrift í bolla af slíkri dásemd!

Hér sjáið þið hversu einfalt þetta er, allt hrært saman í bollanum og sett í örbylgjuofn í 50-60 sekúndur!

lava kaka með súkkulaði

Blaut súkkulaðikaka í örbylgjuofni

Uppskrift dugar í eina Nóa Síríus könnu

  • 15 g hveiti
  • 20 g sykur
  • 1 msk. Síríus kakóduft
  • ½ tsk. lyftiduft
  • ¼ tsk. salt
  • 20 g brætt smjör
  • 20 ml nýmjólk
  • 1 lítið egg
  • ½ tsk vanilludropar
  • 15 g Síríus suðusúkkulaði með karamellukurli og sjávarsalti
  • 1 msk. vatn
  1. Setjið hveiti, sykur, kakóduft, lyftiduft og salt saman í bollann og blandið saman með gaffli.
  2. Bætið þá bræddu smjöri, mjólk, eggi og vanilludropum saman við og pískið vel saman.
  3. Saxið suðusúkkulaði með karamellukurli og sjávarsalti gróft og setjið efst á deigið og hellið einni matskeið af vatni yfir toppinn.
  4. Setjið í örbylgjuofn á hæstu stillingu í 50-60 sekúndur.
  5. Leyfið að kólna í nokkrar mínútur og njótið, gott er að bera kökuna fram með ís.
kaka með blautri miðju

Mmmm…..að þessu sinni notaði ég suðusúkkulaði með karamellukurli og sjávarsalti en því má að sjálfsögðu skipta út fyrir önnur uppáhalds í Síríus línunni!

blaut súkkulaðikaka uppskrift

Þessi fallega kanna frá Nóa Síríus fylgir nú með sem kaupauki þegar keypt er suðusúkkulaði í næstu verslun!

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun