Sykurlausar marmara-muffins



⌑ Samstarf ⌑
marmarakaka

Uppáhalds kökumixin mín eru frá Betty Crocker og nú eru komin sykurlaus slík á markaðinn sem eru dásamlega góð! Ég ákvað að þessu sinni að hræra í eitt af hvorri bragðtegund og blanda saman í súkkulaði og vanillu marmara-muffins sem voru æði!

einfaldar bollakökur

Mmmm….

muffins

Sykurlausar marmara-muffins

Uppskrift gefur um 24 stykki

  • 1 pk. Betty Crocker sykurlaust súkkulaðikökumix
  • 1 pk. Betty Crocker sykurlaust vanillukökumix
  • 6 egg
  • 160 ml vatn
  • 160 ml Isio 4 matarolía
  • Bollakökuform
  1. Hrærið í kökumixin í sitthvoru lagi samkvæmt leiðbeiningum á pakka.
  2. Hitið ofninn í 160°C og setjið pappaform í álform.
  3. Skiptið deiginu niður í formin til skiptis ljósu og dökku, blandið aðeins saman með tannstöngli/skeið.
  4. Bakið þar til topparnir fara aðeins að gyllast eða í 15-20 mínútur.
sykurlausar kökur

Ég á klárlega eftir að prófa mig frekar áfram með þessi kökumix því auðvitað er alltaf gott að geta minnkað sykurinn þar sem því verður við komið!

Deila uppskriftinni

One Reply to “Sykurlausar marmara-muffins”

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun