Gamaldags kjötbollur í brúnni sósu með kartöflumús, grænum baunum og rabarbarasultu er nostalgía fyrir allan peninginn. Ég gerði svona bollur í haust og setti inn smá könnun á Instagram hjá mér hvort fólk kynni almennt að útbúa slíkar eða ekki. Um 70% sögðust kunna þetta en hátt í 30% sögðust það ekki og væru til í að vita hvernig þetta væri gert. Ég ákvað því að svara kallinu og hér kemur þessi dásemd!
Mmmm……

Kjötbollur í brúnni sósu uppskrift
Fyrir 4-5 manns
Kjötbollur og sósa uppskrift
- Um 700 g nýtt kjötfars
- 50 g smjör
- 300 ml vatn
- 300 ml rjómi
- 2 msk. fljótandi nautakraftur
- 3-4 msk. maízenamjöl/sósuþykkjari
- Sósulitur
- Salt og pipar
- Bræðið smjörið við meðalháan hita.
- Baðið matskeið í smjöri og mótið með henni kjötbollur úr farsinu, bætið alltaf smjöri á hana á milli til að farsið festist ekki við.
- Steikið bollurnar vel á öllum hliðum.
- Hellið þá vatni, rjóma og fljótandi krafti saman við og þykkið með maízenamjöli.
- Litið með sósulit sé þess óskað og kryddið aðeins með salti og pipar eftir smekk.
- Leyfið bollunum að malla aðeins í sósunni á meðan þið klárið kartöflumús og takið til annað meðlæti.
Kartöflumús uppskrift
- Um 1 kg bökunarkartöflur
- 40 g smjör
- 150 ml nýmjólk
- 2 msk. sykur
- 1 tsk. salt
- Flysjið og skerið kartöflurnar niður í bita til að flýta fyrir suðunni.
- Sjóðið þar til þær mýkjast og setjið þá yfir í hrærivél með K-inu eða í skál og notið kartöflustappara.
- Bætið smjöri, mjólk, sykri og salti saman við og blandið saman þar til kartöflumús hefur myndast.
Annað meðlæti
- ORA grænar baunir
- Rabarbarasulta
- Berið kjötbollurnar fram með kartöflumúsinni, grænum baunum og rabarbarasultu!
- Það má hita baunirnar í potti, örbylgjuofni eða bera þær fram kaldar, bara það sem ykkur þykir best!

Grænar ORA baunir eru algjörlega ómissandi með ákveðum réttum líkt og kjötbollum í brúnni sósu að mínu mati!



































