Hér er á ferðinni tilbreyting fyrir „Taco Tuesday“ sem ég lofa að mun slá í gegn hjá ykkur!
Svoooo gott!

„Crunchwrap“
Uppskrift dugar fyrir 8 stykki eða fyrir um 4 manns
- Um 500 g nautahakk
- ½ poki Taco krydd
- 8 stórar tortilla kökur
- 8 litlar tortilla kökur
- 8 msk. sýrður rjómi
- 16 msk. ostasósa
- Maarud tortilla chili cheese flögur
- Rósakál/Iceberg saxað
- 4 tómatar saxaðir
- Rifinn ostur
- Guacamole (sjá uppskrift að neðan)
- Olía til steikingar
- Steikið hakkið og kryddið, geymið.
- Smyrjið miðjuna á stóru tortilla kökunni með um 1 msk. af sýrðum rjóma.
- Setjið næst hakk yfir og þá um 2 msk. af ostasósu.
- Næst má raða tortilla flögum yfir ostasósuna og setja kál, tómata og rifinn ost ofan á.
- Að lokum má setja litla tortilla köku ofan á allt og bretta hina stóru upp á hana.
- Steikið við meðalhita á pönnu þar til kakan byrjar að gyllast og verður stökk.
- Skerið til helminga og berið fram með guacamole og Maarud tortilla flögum!
Guacamole uppskrift
- 3 lítil avókadó
- 100 g piccolo tómatar
- ½ rauðlaukur
- 1 msk. lime
- Salt og pipar
- Saxið laukinn og tómatana niður.
- Stappið avókadó og kreistið lime yfir.
- Blandið öllu saman og kryddið eftir smekk.

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!


































