Hér er á ferðinni extra djúsí og góður pastaréttur sem sló í gegn hjá allri fjölskyldunni!
Mmmm…..

Penne pasta með beikoni og sveppum
Fyrir 4-6 manns
- 400 g Dececco penne pasta
- 50 g smjör
- 250 g sveppir
- 250 g beikon
- 3 hvítlauksgeirar
- 400 ml rjómi
- 100 g rjómaostur
- 1 lúka parmesan ostur (rifinn)
- ½ sítróna (safinn)
- 1 msk. soya sósa
- Salt og pipar
- Klettasalat
- Pekanhnetur saxaðar
- Sjóðið pasta samkvæmt leiðbeiningum á pakka og eldið beikonið þar til það er stökkt.
- Skerið sveppina niður og steikið upp úr smjörinu, kryddið eftir smekk.
- Rífið hvítlauksgeirana niður þegar sveppirnir hafa mýkst og steikið með þeim stutta stund.
- Hellið nú rjómanum og rjómaostinum saman við ásamt parmesan osti og blandið öllu saman í sósu.
- Bætið soyasósu og sítrónusafa við í lokin og meira kryddi ef þurfa þykir.
- Hrærið soðnu pastanu saman við rjómasósuna ásamt söxuðu beikoni og toppið með klettasalati og söxuðum pekanhnetum, einnig parmesan osti sé þess óskað.

Það er gott að toppa rjómapasta með fersku klettasalati og hnetum!

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!


































