Ég mátti til með að setja þessa hugmynd hingað inn fyrir ykkur þó þetta sé líklega eitt það einfaldasta sem hægt er að gera. Við köllum þetta alltaf „Hennýarvefjur“ því við smökkuðum þetta fyrst hjá Henný vinkonu þegar þau bjuggu í Danmörku og við fórum að heimsækja þau.

Fljótlegar vefjur
Uppskrift dugar í 6 vefjur (fyrir 3-4)
- 6 Old El Paso vefjur
- 6-12 skinkusneiðar
- 6-12 ostsneiðar
- Iceberg kál
- Vorlaukur
- Pítusósa
- Setjið skinku og ost á helming vefjunnar. Okkur finnst gott að hafa vel af hvoru tveggja svo slíkt er smekksatriði. Brjótið vefjuna saman og setjið í samlokugrill eða steikið á pönnu á báðum hliðum þar til osturinn hefur bráðnað.
- Opnið hana þá að nýju og fyllið af söxuðu káli, vorlauk og pítusósu.

Að þessu sinni notaði ég glúteinlausu tortilla kökurnar frá Old El Paso en þið megið að sjálfsögðu nota venjulegar slíkar ef þið kjósið heldur.

Þetta er ekta matur þegar þið nennið ekki að elda eða viljið grípa eitthvað létt í hádegismat eða annað slíkt.


































