Saltkringlubollur með heitri rjómaostaídýfu



⌑ Samstarf ⌑
saltkringlur á októberfest

Saltkringlur eru sívinsælar á októberfestum og hér er kominn réttur sem minnir eilítið á slíkar.

heit rjómaostaídýfa

Saltkringlubollur með heitri rjómaostaídýfu

Saltkringlubollur

  • 1 pk. þurrger (12 g)
  • 1 msk. sykur
  • 150 ml volgt vatn
  • 390 g hveiti
  • 1 tsk. salt
  • 3 msk. hunang
  • 3 msk. ólífuolía
  • 500 ml sjóðandi vatn
  • 3 msk. matarsódi
  • Gróft salt
  1. Hrærið þurrgeri saman við sykur og volgt vatn og leyfið að standa á meðan þið vigtið önnur hráefni í bollurnar.
  2. Blandið saman hveiti, salti, hunangi og ólífuolíu og hellið þurrgersblöndunni saman við. Hrærið stutta stund með króknum á hrærivélinni og síðan í höndunum (eða aðeins í höndunum).
  3. Penslið skál að innan með ólífuolíu, veltið deigkúlunni upp úr henni, plastið skálina og leyfið deiginu að hefast í að minnsta kosti klukkustund.
  4. Skiptið þá deiginu niður í 16 einingar og mótið litlar bollur.
  5. Hellið sjóðandi heitu vatni yfir matarsóda í skál og veltið hverri bollu upp úr sjóðandi vatninu og raðið næst í kringlótt eldfast mót/pönnu.
  6. Skerið smá kross ofan á hverja bollu og stráið salti yfir.
  7. Útbúið rjómaostaídýfuna (sjá uppskrift að neðan) og smyrjið í miðjuna.
  8. Bakið við 190°C í 17-20 mínútur eða þar til bollurnar eru orðnar vel gylltar og osturinn bráðinn.

Rjómaostaídýfa

  • 130 g Óðals Tindur (rifinn)
  • 100 g rjómaostur frá Gott í matinn (við stofuhita)
  • 100 g rjómaostur með papriku og chili frá Gott í matinn (við stofuhita)
  1. Hrærið öllum ostategundunum saman í skál og smyrjið síðan yfir miðjuna á eldfasta mótinu.
ostóber

Saltkringlubollur og heit rjómaostaídýfa er klárlega málið í næsta partý!

saltkringlur

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun