Karamellu smákökur



⌑ Samstarf ⌑
smákökur uppskrift

Hér kemur fyrsta smáköku uppskriftin þetta árið og hún er sannarlega ekki af verri endanum. Þessi kaka sigraði nefnilega í bökunarkeppni hjá starfsmönnum Nóa Síríus um daginn þar sem ég, ásamt fleirum sátum í dómnefnd. Það er hann Jón Fannar sem á heiðurinn af uppskriftinni og fékk ég hana hjá honum til þess að leyfa fleirum að njóta!

Hún er vel sæt og undursamlega góð, alveg eins og ég vil hafa svona kökur! Þessi uppskrift entist ekki í sólarhring á þessu heimili en það er einmitt það besta við jólabaksturinn, að borða allt jafnóðum á meðan það er nýtt og gott, svo bara baka meira!

smákökur fyrir jólin

Karamellu smákökur uppskrift

  • 100 g sykur
  • 165 g púðursykur
  • 115 g brætt smjör
  • 1 tsk. salt
  • 1 egg
  • 1 tsk. vanilludropar
  • 155 g hveiti
  • ½ tsk. matarsódi
  • 120 g Síríus karamellukurl
  • 120 g Síríus hvítir dropar
  1. Bræðið smjörið. Blandið síðan sykri, púðursykri, salti og smjörinu saman þannig að engir kekkir séu í blöndunni.
  2. Bætið eggi og vanilludropum við og hrærið vel.
  3. Sigtið hveiti og matarsóda við blönduna og hrærið saman við með sleikju.
  4. Bætið karmellukurlinu og hvítu dropunum saman við blönduna og blandið saman með sleikju.
  5. Geymið deigið í um klukkustund í kæli áður en kökurnar eru bakaðar. Einnig er í lagi að geyma það í kæli yfir nótt.
  6. Hitið ofninn í 180°C.   
  7. Mótið kúlur með kúptri matskeið af deigi og raðið með góðu bili á milli á bökunarplötu.
  8. Bakið kökurnar í 8-10 mínútur í miðjum ofni.
  9. Gott er að taka glas og leggja yfir hverja köku um leið og þær koma úr ofninum og snúa í hringi á bökunarplötunni til að jafna lögunina á kökunum.
  10. Látið kökurnar síðan kólna áður en þær eru bornar fram.
smákökur

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun