Það koma nú venjulega ekki tvær færslur inn sama dag hjá mér en þessi hér er í beinu framhaldi af hangikjötinu góða! Það eru nefnilega oft til afgangar og hér kemur ein snilldar leið til þess að nýta afganga af hangikjöti og uppstúf!

Tartalettur með hangikjöti
10 stykki
- 10 tartalettur
- 200 g hangikjöt
- 100 g ORA grænar baunir
- 100 g soðnar kartöflur
- 150 g þykkur jafningur/uppstúfur
- Rifinn ostur
- Hitið ofninn í 180°C.
- Notið afgangs sneiðar af hangikjöti og skerið í litla bita.
- Skerið kartöflurnar einnig í litla bita og blandið næst öllu saman með sleikju nema ostinum.
- Fyllið tartaletturnar með hangikjötsblöndu, setjið vel af rifnum osti yfir og bakið í ofninum í 15-18 mínútur eða þar til osturinn fer að gyllast.


































