Það þekkja flestir klassíska Toblerone ísinn og hef ég gert slíka útfærslu í mörg ár! Karamella gerir hins vegar gott betra og almáttugur þessi blanda var undursamleg!

Toblerone karamelluís uppskrift
Ísinn uppskrift
- 5 egg (aðskilin)
- 50 g sykur
- 50 g púðursykur
- 2 tsk. vanillusykur
- 400 ml þeyttur rjómi
- 150 g Toblerone (saxað)
- Karamellusósa (sjá uppskrift að neðan)
- Werther‘s karamellupopp
- Byrjið á því að útbúa karamellusósuna (sjá uppskrift að neðan) og leyfið henni að ná stofuhita á meðan annað er undirbúið.
- Þeytið rjómann og saxið Toblerone, leggið til hliðar.
- Stífþeytið eggjahvíturnar og geymið.
- Þeytið eggjarauður, sykur og púðursykur saman í nokkrar mínútur þar létt og ljós blanda myndast, bætið þá vanillusykrinum saman við.
- Vefjið næst þeytta rjómanum varlega saman við eggjablönduna með sleikju, því næst Toblerone súkkulaðinu og stífþeyttu eggjahvítunum að lokum.
- Setjið bökunarpappír í botninn á um 20 cm smelluformi og hellið um 1/3 af ísblöndunni þar í. Dreifið næst úr 1-2 msk. af karamellusósu yfir allt og endurtakið þrisvar sinnum þar til ísblandan er búin og um helmingurinn af karamellusósunni kominn í ísinn. Geymið restina af sósunni til að hita upp þegar bera á ísinn fram.
- Frystið ísinn í að minnsta kosti 3 klukkustundir eða nokkra daga (plastið ísinn ef geyma á hann lengur en sólahring í frystinum).
- Þegar bera á ísinn fram má setja væna karamellu popphrúgu á miðjuna og setja meira af karamellusósu yfir allt, bera svo restina fram með ísnum fyrir þá sem vilja meira.
Karamellusósa uppskrift
- 200 g Werther‘s karamellur (mjúkar)
- 100 ml rjómi
- Bræðið saman í potti við meðalhita og pískið þar til kekkjalaust. Leyfið karamellunni að ná stofuhita áður en þið notið hana í ísinn.

Þessar karamellur eru þær allra mýkstu og bestu sem ég hef smakkað!
Færsla þessi er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan.


































