Rjómasúkkulaðiunnendur takið eftir! Hér kemur ein sú einfaldasta og ljúffengasta uppskrift af súkkulaðimús þó víða væri leitað!
Mmm…

Rjómasúkkulaðimús
Uppskrift dugar í um 6 glös/skálar
Súkkulaðimús uppskrift
- 300 g Síríus rjómasúkkulaði
- 500 ml rjómi
- ¼ tsk. salt
- 1 tsk. vanilludropar
- Saxið súkkulaðið niður.
- Hitið 250 ml af rjómanum að suðu og hellið yfir súkkulaðið ásamt saltinu. Pískið saman þar til allt súkkulaðið er bráðið.
- Bætið þá restinni af rjómanum sem ekki var hitaður saman við í mjórri bunu og hrærið vel saman ásamt vanilludropunum.
- Þegar búið er að píska blönduna vel saman má setja lok á skálina og kæla blönduna í að minnsta kosti 4 klukkustundir eða yfir nótt.
- Hellið þá kældri blöndunni í hrærivélarskálina og þeytið þar til áferðin minnir á léttþeyttan rjóma.
- Skiptið niður í skálar/glös og skreytið.
Toppur og skreyting
- 250 ml þeyttur rjómi
- 50 g Síríus suðusúkkulaði með karamellu og sjávarsalti
- Hindber
- Sprautið þeyttum rjóma yfir hverja súkkulaðimús.
- Saxið suðusúkkulaðið niður og skreytið með því ásamt hindberjum.

Síríus rjómasúkkulaðið er nú komið í 300g pakkningar sem er fullkomið fyrir þessa uppskrift!



































