Tíminn flýgur sem aldrei fyrr og áramótin eru rétt handan við hornið! Hér er á ferðinni áramótabakki sem allir ættu að ráða við og tekur aðeins nokkrar mínútur að útbúa. Stundum þarf þetta alls ekki að vera flókið til að slá í gegn!
Ungir sem aldnir finna eitthvað við hæfi á þessum bakka og það passar vel að hafa salt snakk í bland við lakkrís, súkkulaði og hlaup!

Áramótabakkinn 2025
- Nóa Kropp
- Síríus súkkulaðimolar (blandaðir)
- Nóa bland í poka
- Bubs blandaðir pokar
- Pringles 3 tegundir
- Panda súkkulaðikúlur
- Bíó kropp
- Tromp bitar
- Finnið góðan bakka og nokkrar litlar skálar til að setja á hann.
- Fallegt er að nota lítinn bakka á fæti og skál á fæti í bland við annað.
- Raðið nammi og snakki á bakkann eins og hugurinn girnist.

Ég raðaði snakki og nammi hér og þar og fyllti síðan upp í allar „eyður“ með Nóakroppi!



































