Pistasíumolar



⌑ Samstarf ⌑

Hráfæðismolar eru svo góðir og ég skil ekki af hverju ég geri þá ekki oftar til að eiga í frystinum. Þetta eru fullkomnir bitar til að grípa til í stað þess að fá sér sælgæti eða sykur!

Nammi sem er fullt af næringu!

döðlu og hnetu nammi

Pistasíumolar

Uppskrift gefur 30-40 mola

Botn

  • 270 g ferskar döðlur
  • 50 g Til hamingju pekanhnetur
  • 50 g Til hamingju möndlur
  • 50 g Til hamingju pistasíur
  • 3 msk. Til hamingju hnetusmjör
  • 2 msk. Til hamingju kókosmjöl
  • 3 msk. bökunarkakó
  • ½ tsk. salt
  • 2 msk. vatn
  • 2 tsk. vanilludropar
  1. Setjið allt í blandara/matvinnsluvél og vinnið saman þar til hægt er að móta kúlur úr blöndunni.
  2. Mótið litlar kúlur og þjappið niður í sílíkon konfektmót. Einnig má fletja út á bökunarpappír sé þess óskað og skera síðan niður í bita þegar búið er að setja toppinn á.
  3. Setjið súkkulaðitopp yfir og skreytið, setjið í frysti í um 30 mínútur og takið molana þá upp úr sílíkonforminu (skerið í bita).
  4. Geymist í kæli í nokkra daga eða frysti í nokkrar vikur.

Súkkulaðitoppur

  • 4 msk. kókosolía (brædd)
  • 60 g bökunarkakó
  • 3 msk. hlynsýróp
  • 30 g Til hamingju pekanhnetur (saxaðar)
  • 3 msk. Til hamingju kókosmjöl
  1. Hrærið olíu, kakó og sýróp saman með gaffli og setjið síðan smá hjúp yfir hvern konfektmola (smyrjið yfir blönduna).
  2. Toppið með söxuðum pekanhnetum og kókosmjöli.
hollt nammi

Mmmm….mæli sannarlega með því að þið prófið!

hráfæðisbitar
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun