Einfalt, fljótlegt og gott er það eina sem mér dettur í hug til að byrja þessa færslu. Við elskum vefjur með ýmiss konar fyllingum og taquitos er skemmtileg leið til að bera fram mexíkóskan mat. Það mætti alveg setja þetta í færri og stærri vefjur en mér finnst gaman að hafa þær svona litlar og borða frekar fleiri slíkar.
Taquitos
Fyrir 4-5 manns
Taquitos
- 12 stk litlar vefjur
- 500 g nautahakk
- 3 msk. tacokrydd
- 3 msk. Spicy Mango Hot Sauce frá Stonewall Kitchen
- 100 g nýrnabaunir
- 3 msk. Spicy Corn Relish frá Stonewall Kitchen
- Rifinn ostur
- Ólífuolía
- Hitið ofninn í 180°C.
- Steikið nautahakkið upp úr ólífuolíu og kryddið með taco kryddi.
- Bætið Spicy Mango Hot Sauce, nýrnabaunum og Spicy Corn Relish saman við þegar hakkið er eldað og blandið vel saman.
- Smyrjið eldfast mót að innan með ólífuolíu og takið til vefjurnar.
- Skiptið hakkinu niður á 12 vefjur, setjið vel af rifnum osti ofan á og rúllið þétt upp.
- Raðið í eldfasta mótið, penslið með ólífuolíu og bakið í 15-20 mínútur.
- Berið fram með guacamole og öðru meðlæti (sjá hér að neðan).
Guacamole
- 2 avókadó
- 100 g piccolo tómatar
- ¼ rauðlaukur
- ½ lime safinn
- 1 msk. kóríander
- Salt og pipar
- Stappið avókadó, skerið niður tómata og saxið lauk og kóríander.
- Blandið öllu saman og njótið með taquitos þegar það kemur úr ofninum.
Annað meðlæti
- Sýrður rjómi
- Mango Taco Topper frá Stonewall Kitchen
- Mild Tomato Salsa frá Stonewall Kitchen

Þessi undursamlega mangósósa gaf hakkinu gott bragð!

Það er síðan mikið úrval af vörum fyrir mexíkóska matargerð til frá Stonewall Kitchen. Þetta eru úrvals gæðavörur og svo dásamlega góðar!



































