Það er fátt betra en góðar hnallþórur! Mig langaði til þess að prófa að skipta Rice Krispies út fyrir Nóakropp í slíkum botni og úr varð þessi undursamlega bomba fyrir ykkur að njóta.
Namm!

Nóakropps bomba uppskrift
Nóakroppsbotn
- 40 g smjör
- 170 g sýróp
- 200 g Síríus suðusúkkulaði
- 400 g Nóakropp
- Setjið bökunarpappír í botninn á um 20 cm smelluformi og spreyið það að innan með matarolíuspreyi.
- Bræðið saman smjör, sýróp og suðusúkkulaði.
- Hrærið þá Nóakroppi saman við og blandið saman, hellið í smelluformið og sléttið aðeins úr.
- Kælið á meðan þið útbúið karamellu og undirbúið fyllinguna.
Marengs uppskrift
- 3 eggjahvítur
- 130 g púðursykur
- 1 tsk. Cream of tartar
- Hitið ofninn í 120°C.
- Teiknið hring með smelluforminu fyrir Nóakroppsbotninn á smjörpappír og leggið á bökunarplötu.
- Þeytið eggjahvítur örskamma stund þar til þær byrja að freyða aðeins.
- Bætið púðursykri saman við í nokkrum skömmtum og þeytið vel á milli. Þeytið þar til marengsinn er stífþeyttur og bætið Cream of tartar við í lokin og þeytið stutt til viðbótar.
- Búið til nokkurs konar marengsskál inn í teiknaða hringinn en hafið marengsinn um 2 cm frá kantinum á hringnum því hann mun aðeins stækka við baksturinn.
- Bakið í 90 mínútur og leyfið að kólna með ofninum.
Karamella
- 100 g Nóa rjómakúlur
- 50 ml rjómi
- Bræðið saman í potti þar til slétt karamella hefur myndast.
- Leyfið karamellunni að ná stofuhita áður en þið notið hana á kökuna.
Fylling og samsetning
- 500 ml rjómi
- Nóakropp
- Jarðarber, hindber, brómber
- Þeytið rjómann.
- Leggið Nóakroppsbotninn á kökudisk og setjið um helming rjómans yfir hann.
- Setjið næst marengsbotninn yfir rjómann og setjið restina af rjómanum yfir marengsbotninn.
- Setjið síðan karamelluna yfir rjómann og toppið með berjum og Nóakroppi.

Nóakropp gerir lífið einfaldlega betra!



































