Það styttist í Bolludaginn og ekki seinna að vænna en koma með nýjar útfærslur af fyllingum fyrir ykkur ykkur! Vatnsdeigsbollur eru mínar uppáhalds svo ég er ekkert mikið að breyta út af vananum þar en síðan er heldur betur hægt að leika sér með fyllingar og toppa!
Mmmm….

Mokkabollur
Um 12 stykki
Vatnsdeigsbollur uppskrift
- 200 g hveiti
- 1 tsk. lyftiduft
- ¼ tsk. salt
- 3 egg (160 g)
- 180 g smjör
- 360 ml vatn
- Hitið ofninn í 180°C og klæðið tvær bökunarplötur/skúffur með bökunarpappír.
- Blandið hveiti, lyftidufti og salti saman í skál og geymið.
- Pískið og vigtið eggin í skál og geymið.
- Bræðið smjörið í potti og hellið vatninu saman við, hrærið saman þar til fer að sjóða og smjörið er bráðið.
- Slökkvið þá á hellunni og blandið hveitiblöndunni saman við svo úr verði nokkurs konar smjörbolla.
- Færið blönduna yfir í hrærivélarskálina og hrærið með K-inu á lágum hraða þar til mesti hitinn er farinn úr deiginu.
- Bætið þá eggjunum saman við í nokkrum skömmtum og blandið saman.
- Notið stóra ísskeið eða vel kúfaða matskeið til þess að móta bollurnar og bakið síðan í um 35 mínútur eða þar til þær verða vel gylltar. Alls ekki opna ofninn samt fyrr en í fyrsta lagi að 25 mínútnum liðnum.
- Kælið síðan áður en þið fyllið og skreytið.
Mokkafylling
- 1 pk Royal búðingsduft með mokkabragði
- 200 ml mjólk
- 50 ml rjómi (óþeyttur)
- 350 ml rjómi (léttþeyttur)
- Hellið mjólk og 50 ml af rjóma í skál og pískið búðingsduftið saman við.
- Kælið í um 10 mínútur og hrærið að minnsta kosti einu sinni í blöndunni á meðan hún er í kælinum.
- Vefjið næst léttþeytta rjómanum saman við búðinginn með sleikju
- Fyllið bollurnar með mokkablöndunni og skreytið síðan.
Samsetning og skreyting
- 80 g dökkt súkkulaði
- Flórsykur
- Bræðið súkkulaðið og „drisslið“ smá yfir lokið á hverri bollu.
- Leyfið súkkulaðinu að taka sig áður en þið sigtið örlítinn flórsykur yfir bollurnar.
- Kælið og njótið!

Nýji Royal búðingurinn með mokka bragði er svooooo góður og algjörlega fullkominn til að setja inn í bollur!



































