Það er endalaust hægt að leika sér með góðar fyllingar þegar kemur að Bolludeginum! Þessar slógu alveg í gegn og er dásamlega gott að hafa svona stökka bita bæði í rjómanum og á toppnum!
Mmmm…..

Súkkulaði og saltkaramellu vatnsdeigsbollur
Um 20 stykki
Vatnsdeigsbollur uppskrift
- 200 g hveiti
- 1 tsk. lyftiduft
- ¼ tsk. salt
- 3 egg (160 g)
- 180 g smjör
- 360 ml vatn
- Hitið ofninn í 180°C og klæðið tvær bökunarplötur/skúffur með bökunarpappír.
- Blandið hveiti, lyftidufti og salti saman í skál og geymið.
- Pískið og vigtið eggin í skál og geymið.
- Bræðið smjörið í potti og hellið vatninu saman við, hrærið saman þar til fer að sjóða og smjörið er bráðið.
- Slökkvið þá á hellunni og blandið hveitiblöndunni saman við svo úr verði nokkurs konar smjörbolla.
- Færið blönduna yfir í hrærivélarskálina og hrærið með K-inu á lágum hraða þar til mesti hitinn er farinn úr deiginu.
- Bætið þá eggjunum saman við í nokkrum skömmtum og blandið saman.
- Notið litla ísskeið eða matskeið til þess að móta bollurnar og bakið síðan í um 30 mínútur eða þar til þær verða vel gylltar. Alls ekki opna ofninn samt fyrr en í fyrsta lagi að 25 mínútnum liðnum.
- Kælið síðan áður en þið fyllið og setjið glassúr ofan á.
Fylling í bollur
- 500 ml þeyttur rjómi
- 3 x Smash saltkaramellustykki ( 3 x 40 g)
- Saxið Smash stykkin smátt niður og vefjið saman við rjómann með sleikju.
- Setjið í sprautupoka með stórum hringlaga stút og fyllið bollurnar (líka hægt að nota bara skeið).
Glassúr og skreyting
- 100 g smjör (bráðið)
- 210 g flórsykur
- 3 msk. Síríus bökunarduft
- 3 tsk. vanilludropar
- 2 msk. uppáhellt kaffi
- Nóa Smákropp
- Pískið allt saman nema Smákroppið.
- Setjið glassúr yfir hverja bollu og toppið með Smákroppi.

Þetta súkkulaðistykki er eitthvað annað gott!

Namm!



































