Steikarloka



⌑ Samstarf ⌑
steikarloka

Þessi steikarloka, eða öllu heldur steikarsneið var frábærlega góð! Rifið nautakjöt í soyalegi er eitt það allra besta og passaði einstaklega vel með hvítlauks Aioli á brauðsneið sem þessari!

Kjötið má þessvegna hægelda deginum áður og hræra svo upp í á vægum hita í potti þegar setja á steikarlokuna saman.

steikarloka með nautakjöti

Steikarloka uppskrift

Uppskrift dugar fyrir 5-6 sneiðar

Hægeldað nautakjöt í kryddlegi

  • Um 700 g nauta chuck/ribeye/annað svipað
  • 150 ml ólífuolía
  • 100 ml nautasoð
  • 100 ml soyasósa
  • 2 x lime (safinn)
  • 2 x jalapeno (skorið í sneiðar)
  • 80 g púðursykur
  • Smjör og ólífuolía til steikingar
  1. Lokið kjötinu með því að steikja það upp úr smjöri + ólífuolíu í pottinum og brúna það á öllum hliðum.
  2. Hitið ofninn í 160°C.
  3. Hrærið öll önnur hráefni saman og hellið yfir nautakjötið, lokið pottinum og leyfið að hægeldast í 3 klukkutíma, gott að snúa kjötinu 1 x á meðan.
  4. Tætið kjötið síðan niður og blandið öllu saman í sósunni/leginum. Ef þið viljið minna sterkt þá getið þið veitt jalapeno upp úr pottinum áður en þið tætið niður kjötið.

Önnur hráefni og samsetning

  • 5-6 þykkar súrdeigssneiðar
  • Stonewall Garlic Aioli
  • Klettasalat
  • ½ rauðlaukur
  • 10-12 sveppir
  • Basilika/kóríander (eftir smekk)
  • Smjör og ólífuolía til steikingar
  • Salt, pipar og hvítlauksduft
  1. Byrjið á því að smjörsteikja sveppina og krydda þá eftir smekk.
  2. Steikið næst brauðsneiðarnar á nokkuð háum hita upp úr smjöri/ólífuolíu þar til þær verða aðeins stökkar að utan en enn mjúkar að innan.
  3. Raðið síðan saman; brauðsneið, Garlic Aioli, klettasalat, vel af rifnu nautakjöti, rauðlaukur, sveppir og toppið að lokum með basiliku eða kóríander og meira af Garlic Aioli.
hvítlauks aioli

Þetta hvítlauks Aioli er eitthvað annað gott!

rifið nautakjöt í samloku
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun