Sítrónu linguine með humri og burrata



⌑ Samstarf ⌑
pasta með burrata

Léttur og vorlegur pastaréttur sem allir í fjölskyldunni munu elska! Ljúffengt sítrónusmjörið passar fullkomlega með bökuðum tómötum, humri og burrata, nammi namm!

Fljótlegt, ferskt og gott!

linguine pasta með burrata

Sítrónu linguine með humri og burrata

Fyrir 4 manns

  • 300 g piccolo tómatar
  • 400 g linguine pasta
  • 500 g skelflettur humar
  • 1 sítróna (í þunnar sneiðar)
  • 4 hvítlauksgeirar
  • Smjör til steikingar
  • Ólífuolía
  • Salt og pipar
  • Toppur:
    Ferskt basilpestó
    Ristaðar furuhnetur
    Söxuð basilika
    4 x litlar burrata kúlur frá Mjólkursamsölunni (við stofuhita)
  1. Hitið ofninn í 200°C.
  2. Setjið tómatana í eldfast mót, hellið um 2 msk. af ólífuolíu yfir, rífið 2 hvítlauksrif saman við, saltið og piprið. Bakið í ofninum í 20 mínútur á meðan þið undirbúið annað.
  3. Sjóðið linguine í söltu vatni.
  4. Smjörsteikið humarinn á meðan og rífið 2 hvítlauksrif yfir hann í lokin, saltið og piprið.
  5. Takið humarinn af pönnunni, bætið á hana smjöri (um 2 msk), ólífuolíu (um 2 msk) og sítrónusneiðum, leyfið að malla við meðalhita þar til sneiðarnar mýkjast upp.
  6. Bætið linguine saman við sítrónusmjörið og veltið upp úr því, fjarlægið síðan sítrónusneiðarnar sjálfar.
  7. Raðið síðan saman á disk; linguine, bakaðir tómatar, smjörsteiktur humar, pestó, furuhnetur, basilika og síðast en ekki síst burratakúla.
  8. Njótið sem fyrst með góðu hvítlauksbrauði.
sítrónupasta með burrata

Burrata ostur gerir einfaldlega allt betra og þessar litlu kúlur eru þær krúttlegustu! Við vinkonurnar fengum einmitt svona á Sól veitingastað um daginn og þið vitið ekki hvað það gladdi mig að sjá þetta í verslunum!

einfaldur pastaréttur

Mmmmm….

burrata ostur í pasta
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun