Rice Krispies kubbar með súkkulaðiperlum



⌑ Samstarf ⌑
Rice Krispies kubbar

Það er alltaf gott að koma með súper einfaldar hugmyndir inn á milli. Það elska flestir Rice Krispies og mikil veisluhöld framundan víða, bæði fermingar og útskriftir! Hér kemur krakkavæn hugmynd sem allir ættu að ráða við!

Mmmm….einfalt, fljótlegt og súper gott!

Rice Krispies bitar

Rice Krispies kubbar með súkkulaðiperlum

Um 30 bitar

  • 200 g Síríus suðusúkkulaði
  • 50 g smjör
  • 200 g sýróp
  • 100 g Nóa rjómakúlur
  • 170 g Rice Krispies
  • Síríus súkkulaðiperlur
  1. Bræðið suðusúkkulaði, smjör, sýróp og rjómakúlur saman í potti.
  2. Bætið Rice Krispies saman við og hellið í form/bakka og hafið bökunarpappír undir.
  3. Þjappið blöndunni í rétthyrning, um 2 cm á þykkt og stráið vel af súkkulaðiperlum yfir, þjappið þeim aðeins niður í blönduna svo þær festist betur.
  4. Kælið og skerið í bita.
  5. Fallegt er að raða bitunum á bakka/stand og blanda Nóa nammi (bland í poka) og blönduðum Nóa trítlum á hann í bland við Rice Krispies kubbana.
Rice Krispies bitar

Sígild uppskrift sem klikkar seint!

Rice Krispies kubbar

Namm!

Rice Krispies kökur

Fullkominn bakki fyrir veisluna.

Rice Krispies kökur
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun