Í fyrrakvöld sóttum við Hemmi gömlu góðu Brauðréttabókina frá Hagkaup lengst upp í skáp! Það fór um okkur nostalgíufiðringur því ég man svo vel þegar við vorum að byrja að búa í Hamravíkinni, rétt rúmlega tvítug og vorum að kaupa þessar bækur í Hagkaup í Spönginni. Einnig fengum við þær í gjafir og ef einhverjar bækur voru málið, þá voru það þessar og þeim var flett vel og mikið og mögulega kenndu þær okkur að elda og halda veislur, hver veit, tíhí!
Hér hafið þið hið heilaga pepperoni ostasalat eins og Jói Fel útbjó það forðum daga í bókinni. Þetta er nokkuð stór uppskrift og dugar vel í tvær skálar eins og þá sem þið sjáið hér í færslunni svo þetta er hið fullkomna veislusalat. Við vorum farin að rífa ostinn niður á sínum tíma en ég hef færst aftur til þess að skera hann í teninga, bara reyna að hafa þá frekar litla!

Njótið!

Pepperoni ostasalat uppskrift
- 200 g Heinz majónes
- 150 g sýrður rjómi
- 1 x papriku kryddostur
- 2 x pepperoni kryddostur
- 100 g skinka
- 50 g salami
- ½ laukur
- 20 vínber
- Pískið majónes og sýrðan rjóma saman.
- Skerið ostinn í litla bita ásamt skinku og salami. Saxið laukinn smátt og skerið vínberin niður.
- Blandið næst öllu saman og leyfið að standa í kæli í 3 klukkustundir og njótið með Ritz kexi eða góðu brauði.

Majónes er að sjálfsögðu lykilatriði hér eins og í ansi mörgum góðum salötum!

Ritzkexið góða passar síðan einstaklega vel með þessu salati!

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan.


































