Það er mikilvægt að halda í gamlar hefðir og hef ég verið dugleg að deila slíkum uppskriftum með ykkur undanfarna mánuði í samstarfi við ORA. Hér kemur nú undurmjúkt lambagúllas og því get ég lofað að allir fjölskyldumeðlimir borðuðu vel!
Það er ekki hægt annað en elska svona uppskriftir!

Lambagúllas í brúnni sósu með kartöflumús
Fyrir um 5 manns
Lambagúllas uppskrift
- 900 g lambagúllas
- 1 laukur
- 2-3 gulrætur
- 100 g smjör
- 700 ml vatn
- 500 ml rjómi
- 2-3 msk. fljótandi nautakraftur
- 1-2 lárviðarlauf
- Salt, pipar, paprikuduft
- Sósulitur
- Maizenamjöl
- ORA grænar baunir (meðlæti)
- Rabarbarasulta (meðlæti)
- Skerið lauk og gulrætur í þunnar sneiðar og steikið upp úr smjöri, kryddið eftir smekk.
- Þegar grænmetið er búið að mýkjast má færa það yfir á disk, bæta smjöri á pönnuna og brúna kjötið á öllum hliðum, krydda eftir smekk.
- Þá má bæta grænmetinu aftur í pottinn ásamt vatni, rjóma og nautakrafti.
- Kryddið eftir smekk, þykkið með maizenamjöli og litið með sósulit. Bætið lárviðarlaufunum síðan saman við og leyfið að malla í að minnsta kosti klukkustund við vægan hita.
- Sjóðið á meðan kartöflur og útbúið kartöflumús.
- Njótið síðan með ORA grænum baunum og rabarbarasultu.
Kartöflumús uppskrift
- 1100 g bökunarkartöflur
- 200 ml nýmjólk
- 50 g smjör
- 2 msk. sykur
- 1 tsk. salt
- Flysjið kartöflurnar, skerið í minni bita og sjóðið þar til þær eru mjúkar.
- Hellið vatninu af, færið þær yfir í hrærivélarskálina og hrærið á lægstu stillingu.
- Bætið smjöri, sykri og salti saman við og síðan mjólk.

Þessi dós kláraðist fljótt svo ég mæli með tveimur eða einni risastórri!



































