Egg Benedict og bröns



⌑ Samstarf ⌑
egg benedict

Það er alls ekki flókið að útbúa „Egg Benedict“ og hér koma hugmyndir fyrir ljúffengan bröns eða dögurð á góðri íslensku. Allt hráefni er keypt í Hagkaup og ég elska hvað það er til mikið tilbúið gúrm þar! Það auðveldar samsetningu og sparar tíma í undirbúningi án þess að það komi niður á gæðunum. Hér er til dæmis allt keypt tilbúið og raðað á borð nema ég útbjó „Egg Benedict“ frá grunni.

Mmmm…..einfalt og gott!

páskabröns

Mæli með að þið prófið yfir páskana eða hvenær sem ykkur langar í ljúffengan bröns.

egg benedict uppskrift

Egg Benedict uppskrift

6 stk

  • 3 x Manhattan English Muffins
  • Beikonskinka og/eða reyktur lax
  • Hleypt egg (sjá aðferð að neðan)
  • Hollandise sósa (sjá uppskrift að neðan)
  • Pipar
  • Smjör til steikingar
  1. Skerið English Muffins í sundur svo þið fáið 6 helminga.
  2. Steikið upp úr smjöri við meðalháan hita og leggið á disk.
  3. Setjið næst beikonskinku/eða reyktan lax, hleypt egg og toppið með vel af hollandaise sósu og smá pipar.

Hleypt egg aðferð

  • 6 egg
  • 1 l vatn
  • 1 msk. edik
  1. Hitið vatnið að suðu og bætið ediki saman við.
  2. Brjótið eggin í bolla, eitt í einu.
  3. Snúið skeið í hringi í pottinum til að mynda hringsog í miðjunni og hellið egginu varlega í miðjuna og leyfið því að vera í pottinum í 2 ½ – 3 ½ mínútu eftir því hversu blauta þið viljið hafa rauðuna.
  4. Veiðið eggið þá upp úr með spaða/gatasigti og leggið ofan á skinkuna/laxinn (einnig má safna eggjunum saman á eldhúspappír og setja síðan ofan á brauðið).

Hollandaise sósa uppskrift

  • 3 eggjarauður
  • 1 msk. vatn
  • ½ sítróna (safinn)
  • 180 g smjör (brætt)
  • Salt, cheyenne pipar
  1. Setjið eggjarauður, vatn og sítrónusafa í þrönga könnu/ílát sem töfrasproti kemst ofan í.
  2. Bræðið smjörið og hellið yfir í mælikönnu.
  3. Þeytið eggjarauðublönduna stutta stund og á meðan töfrasprotinn er enn í gangi megið þið bæta brædda smjörinu saman við í mjórri bunu og þeyta allan tímann.
  4. Þeytið þar til sósan hefur þykknað og njótið sem fyrst. Ef sósan verður of þykk má þynna hana með því að setja 1 msk. af volgu vatni saman við í einu og þeyta saman.

Annað gott hráefni fyrir  brönsinn

  • Súrdeigsbrauð með jalapeno frá Hagkaup
  • Tilbúin brauðsalöt frá Hagkaup
  • Tilbúnir niðurskornir ávextir (ananas og vatnsmelóna)
  • Steikt beikon
  • Jarðarber, brómber eða önnur ber/ávextir sem hugurinn girnist
  • Tilbúnar frosnar pönnukökur með sýrópi og berjum
  • Kleinuhringir með súkkulaði (fást frosnir í Hagkaup)
  • Lítil súkkulaðiegg
egg benedict

Hægt er að kaupa niðurskorna ávexti eins og vatnsmelónu og ananas í Hagkaup og það er algjör snilld í brönsinn!

súrdeigsbrauð og salat

Þar er einnig úrval af ljúffengum salötum og jalapeno súrdeigsbrauðið maður minn, það er eitthvað annað gott!

bröns

Allt hráefni í þessa uppskrift fæst í Hagkaup!

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun