Ég elska hnetutopp og hef gert síðan ég var lítil stelpa! Hnetuhrúgan efst er klárlega besti parturinn við þennan ís en nú er hægt að kaupa hann í dósum og auka hnetukurl sér svo það er hægt að hafa þetta allt eins og maður vill!
Það er einfalt að útbúa þessa ísköku og því get ég lofað að allir munu hana elska!

Brownie ískaka með hnetutoppís
- 1 x Betty Crocker Chocolate Fudge Brownie Mix
- 1 x egg
- 50 ml Isio4 matarolía
- 80 ml vatn
- 1 msk. bökunarkakó
- 1 box Rjómaís með hnetum, súkkulaðihjúp og vöfflubitum frá Emmessís
- 3 x Hnetutoppur frá Emmessís
- Heit karamellusósa
- Heit súkkulaðisósa
- Hnetukurl frá Emmessís
- Hitið ofninn í 160°C, setjið bökunarpappír í botninn á 2 x 20 cm smelluformum og spreyið vel að innan með matarolíuspreyi.
- Hrærið saman egg, matarolíu, vatn og bökunarkakó, bætið Betty kökudufti saman við, skiptið síðan niður í formin tvö.
- Bakið í 18-20 mínútur, takið út og leyfið alveg að kólna áður en þið setjið saman.
- Setjið ½ ísdós ofan á neðri botninn og sléttið vel úr.
- Leggið seinni botninn ofan á ísinn og endurtakið.
- Stingið 3 x toppís ofan í efra lagið á ísnum og frystið í um eina klukkustund aftur.
- Rennið beittum hníf meðfram forminu til að losa ísinn og færið ískökuna yfir á disk.
- Hellið karamellu- og súkkulaðisósu yfir allt og stráið vel af hnetukurli yfir.
- Geymið í frysti fram að notkun.

Þetta brownie mix frá Betty er virkilega gott og þegar það er bakað í tveimur þunnum botnum er auðvelt að skera í gegnum það þrátt fyrir að það sé frosið.

Hnetutoppurinn kominn í fullkomna ísblöndu í boxi!



































