Sumardagurinn fyrsti er á morgun og verðrið hefur leikið við okkur undanfarna daga! Hér er fullkomin máltíð fyrir komandi sumardaga!
Mmmm…

Svínarif, kartöflusalat og maís
Uppskrift fyrir um 5 manns
Kartöflusalat uppskrift
- 700 g bökunarkartöflur
- 4 egg (harðsoðin)
- ½ rauðlaukur (saxaður smátt)
- ½ rauð paprika (söxuð smátt)
- 250 g majónes
- 3 msk. Farmhouse Green Relish frá Stonewall Kitchen
- 1 msk. Country Ketchup frá Stonewall Kitchen
- 2 tsk. Truffle Mustard frá Stonewall Kitchen
- Flysjið kartöflurnar og skerið í munnstóra teninga, sjóðið og kælið.
- Setjið kartöflur í skál, skerið eggin niður og blandið saman við ásamt lauk og papriku.
- Pískið majónes, relish, tómatsósu og sinnep saman og blandið varlega saman við kartöflublönduna með sleikju.
- Kælið fram að notkun.
Svínarif eldun
- 4 x heil óelduð svínarif
- Góð kryddblanda
- 2 x steikarpoki
- Hitið ofninn 150°C.
- Kryddið rifin vel beggja megin (ég notaði salt, pipar, papriku og Bezt á allt krydd í bland).
- Komið þeim fyrir í steikarpoka, 2 rif í hvorn poka.
- Hægeldið rifin í pokunum í 1,5 klst, takið þau þá út, opnið pokann og leyfið hitanum aðeins að rjúka úr.
- Penslið örþunnu lagi af bbq sósu á rifin beggja megin og grillið á vel heitu grilli skamma stund (þetta gert til þess að fá stökka húð á kjötið).
- Takið af grillinu og penslið 1-2 x sósu á báðar hliðar að nýju, skerið niður og berið fram.
Grillaður maís með aioli, osti og kryddi
- 5 ferskir maískólfar
- Habanero-Mango aioli/Smoky Barbecue aioli frá Stonewall Kitchen
- Spicy Chili Lime maískrydd frá Urban Accents
- Parmesanostur (rifinn)
- Sjóðið maísinn í um 10 mínútur og færið hann þá yfir á grillið í stutta stund til að brúna hann aðeins.
- Smyrjið vel af aioli yfir maísinn, kryddið og rífið parmesan ost yfir.

Einnig er gott að bera fram Spicy Pickle Slaw frá Stonewall Kitchen með þessari máltíð.

Stelpurnar okkar eru vitlausar í svínarif og finnst okkur ómissandi að hafa ferskan maís með! Þegar við bjuggum í USA keypti ég alltaf maís sem var enn í hýðinu, lét hann liggja í bleyti og hreinsaði síðan „hárin“ af honum áður en við grilluðum hann og fæst slíkur maís oft hérlendis.

Mmm það er æðislegt að setja Stonewall aioli á maísinn, krydd og parmesanost!


























