Elsku Hulda Sif mín varð 8 ára í apríl inn í miðjum páskum. Við frestuðum því afmæli þar til í lok apríl og ég ákvað að setja hingað inn nokkrar myndir og hugmyndir fyrir ykkur þar sem ég er búin að fá ansi margar fyrirspurnir um eitt og annað tengt svanaþemanu!
Skellti líka í stutt myndband…

Ég útbjó afmæliskökuna sjálfa ásamt nokkrum bollakökum en að öðru leyti keypti ég annað á „Svanaborðinu“ frá 17 Sortum.

Svaninn sjálfan á toppnum lét ég sérhanna hjá 29 línum en hann var algjörlega það sem gerði þessa svanaköku að því sem hún var! Ég lagði ekki í að fara að föndra svanaháls úr sykurmassa og eitthvað bras svo þetta bjargaði ekki bara kökunni, heldur einnig geðheilsu minni, hahaha! Þau hönnuðu líka gyllta kökuskiltið og stakk ég því í bollakökurnar ásamt kórónum frá Partýbúðinni, svo sætt!

Svanakaka
Ég bakaði 3 x súkkulaðibotna fyrir hvora hæð (20 cm og 15 cm), setti súkkulaðismjörkrem á milli og skreytti síðan með hvítu Betty Crocker kremi því það verður mun hvítara og fallegra en smjörkrem.
Ég set alltaf um 100 g af flórsykri saman við hverja dós af kremi og þá næ ég stífleika til að sprauta mynstur sem hentar. Hér notaði ég stóran laufstút til að gera blúndur og svo smurði ég bara vænu lagi á efri kökuna áður en ég festi súkkulaðivængina á.
Súkkulaðivængina gerði með því að bræða hvítt hjúpsúkkulaði og smá bleikt (fæst í Hagkaup og Allt í köku), ég setti síðan væna doppu af hvítu súkkulaði á bökunarpappír, smá bleikt ofan á og dró út með kökuspaða til að móta vængi. Svo leyfir maður þessu að storkna og stingur síðan í kremið þegar efri kakan er komin upp á.
Ég set stoðir á milli hæða og pappaspjald undir efri kökuna. Núna grunnhjúpaði ég báðar kökur og lyfti minni síðan ofan á og setti á hana næsta kremlag þar. Síðan sprautaði ég blúndurnar á neðri kökuna og sprautaði þeim alveg upp að litlu kökunni áður en ég stakk vængjunum í hana.

Hulda Sif vildi fá kleinuhringi eins og stóra systir hafði fengið mánuði áður enda eru þeir eitthvað annað góðir! Elsku Auður og Sylvía eru síðan algjörar töfrakonur þegar kemur að því að láta drauma rætast. Lítil prinsessa fékk því bæði litla og stóra kleinuhringi, merktar makkarónur ásamt Orekexi með svanamynd framan á. Ég skreytti síðan veisluborðið með blómum og bleiku og hvítu nammi í litlum skálum.

Allt fína partýdótið og blöðrurnar komu frá Partýbúðinni og gerði ég blöðrubogann deginum áður og lagði á borð.

Ég elska hvað það er ódýrt og einfalt að útbúa blöðruboga, þetta snýst bara um að hafa nóg af blöðrum og raða þeim saman á plastborða, síðan festa upp í loft, á gardínustangir eða aðra króka sem þið hafið. Ég fékk síðan þessi fallegu pappablóm í Partýbúðinni og fannst mér þau brjóta blöðrubogann upp og gera enn fallegri.

Á eyjunni var síðan „gamaldags hlaðborð“ fyrir fullorðna fólkið ásamt fleiru matarkyns fyrir börnin. Ég keypti smörrebrauð í Hagkaup og gerði nokkur heit rúllutertubrauð. Síðan bakaði tengdó pönnsur, ég keypti marsipantertu og pantaði kransakökubita og sörur hjá 17 Sortum. Þetta sló aldeilis í gegn og ég mæli með að gera oftar svona gamaldags veislu því það elska allir slíkt!

Mmm….þessar sörur og kransakökubitar frá 17 Sortum eru alveg eins og heimabakað, svoooo gott! Yfirleitt er síðan hægt að fá hvorutveggja í frystinum hjá þeim í Hagkaup sem er algjör snilld!

Fyrir krakkana keypti ég síðan kjúklingaspjót í Hagkaup og fullt af mini pizzum ásamt því sem ég greip nokkur box af niðurskornum ávöxtum og setti í skál ásamt berjum.

Lítil afmælisstelpa glöð með daginn! Kjólinn keypti ég í Lindex á útsölu í vor og var hann í raun upphafið að svanaþemanu. Hún var búin að ákveða LOL þema og svo vildi hún þennan kjól fyrir afmælið. Ég ákvað því að reyna að bjarga mér frá LOL vitleysunni og sýndi henni svana servíettur úr Partýbúðinni og benti á að þær væru nú alveg í stíl við nýja kjólinn…..og þar með var svanaþemað selt, takk Lindex, hahaha!



































