Rice Krispies marengsterta með Nóakroppi



⌑ Samstarf ⌑
marengs

Hamingjan hjálpi mér hvað nýja Nóakroppið með karamellukurli og sjávarsalti er gott! Það var auðvitað ekkert annað í stöðunni en að skella í einhverja svaka hnallþóru með þessari snilld og hér kemur ein sem var undurljúffeng og falleg!

Það er bara eitthvað við marengstertur sem fær mann til að kikna í hnjánum!

Marengsterta

Rice Krispies marengsterta með Nóakroppi

Rice Krispies marengs uppskrift

  • 4 eggjahvítur
  • 220 g sykur
  • 60 g Rice Krispies
  • 50 g Síríus suðusúkkulaði með karamellu og salti – saxað
  1. Hitið ofninn í 140°C og teiknið 2 x um 20 cm hringi á sitthvorn bökunarpappírinn í ofnskúffu.
  2. Þeytið eggjahvítur og sykur saman á meðalhraða þar til topparnir halda sér og sykurinn er uppleystur.
  3. Vefjið þá Rice Krispies og söxuðu súkkulaðinu saman við með sleikju og skiptið niður í tvo hluta á bökunarpappírana.
  4. Dreifið úr og mótið hringi, bakið í 60 mínútur og leyfið síðan að kólna niður með ofninum áður en þið fyllið.

Fylling og skreyting

  • 600 ml þeyttur rjómi
  • 100 g jarðarber (stöppuð)
  • 250 g Nóakropp með karamellukurli og sjávarsalti
  • 50 g Síríus suðusúkkulaði með karamellu og salti – brætt
  1. Blandið þeyttum rjóma, stöppuðum jarðarberjum og helmingnum af Nóakroppinu varlveg saman með sleikju.
  2. Setjið helminginn á milli botnanna og hinn helminginn ofan á seinni botninn.
  3. Toppið með restinni af Nóakroppinu og bræddu suðusúkkulaðinu.

marengs með nóakroppi

Namm þetta er klárlega nýja uppáhalds nammið mitt!

Rice Krispies marengs

Það er fátt sem toppar ljúffengar marengstertur.

marengs
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun