Ég er búin að vera að fletta í gömlu Hagkaupsbókunum undanfarið og litla nostalgían sem það er! Þessi uppskrift er ekki nákvæmlega þar en mjög svipuð og ég held að þessa hafi ég séð í þáttunum hjá Jóa Fel á sínum tíma og gerði ansi oft í afmælum og veislum. Ég veit ekki af hverju ég hef ekki gert þetta brauð lengi því það er svo gott og þið hreinlega verðið að prófa!
Mmmm…

Heitt baguette með pestó og osti
- 1 x baguette brauð (fínt)
- Um 1 krukka rautt pestó frá Filippo Berio
- 10-12 sneiðar af sveitaskinku/hamborgarhrygg
- 10-12 sneiðar brie ostur að eigin vali (c.a einn ostur)
- 5-6 ostsneiðar
- Hitið ofninn í 180°C.
- Skerið raufar í baguette brauðið, 10-12 raufar með jöfnu millibili.
- Smyrjið um 1 tsk. af pestó ofan í hverja rauf.
- Skerið ostsneiðar í tvennt (ég var með svona þykkar fyrirframskornar í pakka) og raðið saman skinkusneið, ostsneið og bita af brie osti, klemmið saman og komið fyrir í raufunum.
- Bakið í 12-15 mínútur og skerið síðan niður í sneiðar (skerið brauðið á milli raufanna).
- Njótið á meðan brauðið er heitt!

Pestó og brie ostur fara afar vel saman!

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!


































