Heslinhetusúkkulaðimús



⌑ Samstarf ⌑
heslihnetusúkkulaðimús

Ballerina kex er mögulega eitt besta kex veraldar og hér er ég búin að útbúa „Ballerina-súkkulaðimús“ því það er aldrei hægt að gera of margar útfærslur af slíkri!

Einföld, fljótleg og súper góð!

súkkulaðimús

Heslinhetusúkkulaðimús

Uppskrift dugar í um 6 skálar/glös

  • 180 g Göteborgs Ballerina kex + 6 stykki til skrauts
  • 220 g súkkulaði-heslihnetusmjör
  • 850 ml rjómi (skipt)
  • 3 msk. flórsykur
  • Kakóduft til skrauts
  1. Myljið 180 g af kexi í blandara og skiptið niður í botninn á glösunum.
  2. Bræðið súkkulaði-heslihnetusmjörið í örbylgju ásamt 50 ml af rjómanum. Hitið við meðalhita í 20 sekúndur nokkru skipti og pískið síðan saman.
  3. Þeytið 500 ml af rjóma + flórsykur létt á meðan.
  4. Bætið næst súkkulaðiblöndunni saman við rjómann og þeytið áfram þar til léttþeytt súkkulaðiblanda er tilbúin.
  5. Hellið/sprautið henni í skálarnar og kælið áður en þið skreytið.
  6. Þeytið 300 ml af rjóma og sprautið ofan á músina.
  7. Sigtið smá kakóduft yfir og stingið einu Ballerinakexi í hverja mús.
eftirréttur

Ballerina kexið er gott í kökur sem og eitt og sér!

súkkulaðimús með kexbotni
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun