Ofnbakaðar pylsur með bökuðum baunum



⌑ Samstarf ⌑
bakaðar pylsur

Maðurinn minn sagði mér fyrir einhverju síðan frá svo girnilegri pylsu sem Vegamótaprinsinn hefði verið að malla með bökuðum baunum. Ég fann nú síðan reyndar ekkert um þá pylsu en setti saman undurgóða pylsu með bökuðum baunum á minn hátt. Þetta kom virkilega á óvart og ég hvet ykkur til að prófa!

Mmmm….

pylsur í ofni

Ofnbakaðar pylsur með bökuðum baunum

Uppskrift dugar í 4 pylsur

  • 4 x pylsubrauð
  • 4 x pylsa
  • Heinz mild yellow sinnep
  • 1 dós Heinz bakaðar baunir (415 g)
  • Rifinn ostur
  • ½ rauðlaukur
  1. Hitið ofninn í 180°C.
  2. Opnið pylsubrauðin vel og raðið í eldfast mót/í ofnskúffu.
  3. Smyrjið að innan með þunnu lagi af sinnepi.
  4. Leggið næst pylsu í hvert brauð og skiptið dósinni af bökuðu baununum síðan niður í þessar 4 pylsur.
  5. Setjið rifinn ost yfir hverja og bakið í ofninum í um 15 mínútur.
  6. Toppið með söxuðum rauðlauk og meira sinnepi þegar úr ofninum er komið.
bakaðar baunir

Bakaðar baunir eru oftast kallaðar „rauðar baunir“ á mínu heimili .

ofnbakaðar pylsur

Þessi réttur passar hvort sem heldur í brönsinn, hádegis- eða kvöldverðinn.

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun