Einfalt, fljótlegt, sumarlegt og gott! Það er ekki hægt að biðja um mikið meira og stundum þarf þetta alls ekki að vera flókið, mæli með þessari dásemd!
Mmmm….

Pestó spaghetti
Fyrir 4-5 manns
- 500 g DeCecco spaghetti
- 2 hvítlauksrif
- 1 krukka Filippo Berio grænt pestó
- 100 ml pastavatn
- Parmareggio parmesanostur
- Basilíka
- Spírur/klettasalat
- Salt + pipar
- Filippo Berio ólífuolía
- Filippo Berio jómfrúarolía
- Sjóðið spaghetti í vel söltu vatni samkvæmt leiðbeiningum á pakka.
- Rífið hvítlauksrifin niður og steikið við vægan hita upp úr ólífuolíu.
- Bætið spaghetti á pönnuna og blandið saman með pestó, pastavatni og smá jómfrúarolíu, kryddið eftir smekk.
- Skammtið á diska og rífið vel af parmesanosti yfir og toppið einnig með basilíku og ferskum spírum sé þess óskað.

Pestó og pasta fer einstaklega vel saman!

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!


































