BBQ pylsuspjót



⌑ Samstarf ⌑
pylsur á spjóti með bbq

Hér kemur góð leið til að brjóta upp grillaðar pylsur! Algjör snilld og hver og einn getur auðvitað raðað á spjótin eftir sínum óskum. Kartöflurnar eru að mínu mati ómissandi með pylsunum og svo þarf ekkert annað nema tómatsósu og sinnep með þessu!

Einfalt og frábært!

grillaðar pylsur

BBQ pylsuspjót

Um 8 spjót

  • 5 klassískar pylsur
  • 3 chilli/ostapylsur (aðrar uppáhalds pylsur)
  • 1 x paprika (rauð)
  • ½ rauðlaukur
  • Smælki kartöflur (eða hefðbundnar skornar niður)
  • 2 msk. Heinz bbq sósa
  • 2 msk. Heinz tómatsósa
  • 1 msk. Heinz sinnep
  • 1 tsk. soyasósa
  • ½ tsk. hvítlauksduft
  • ½ tsk. paprikuduft
  1. Sjóðið smælki þar til það er tilbúið, kælið aðeins niður áður en þið stingið spjótunum í gegn. Ef þið notið venjulega stærð af kartöflum er gott að skera líka í 4 bita.
  2. Skerið pylsur, papriku og rauðlauk niður í munnstóra bita.
  3. Þræðið upp á grillspjót og penslið með bbq blöndunni.
  4. Grillið á meðalheitu grilli í 8-10 mínútur og penslið restinni af bbq blöndunni yfir í lokin.
  5. Njótið með Heinz tómatsósu og sinnepi!
bbq pylsuspjót

Mæli með að þið prófið þessa snilld!

grillaðar pylsur

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun