Humarpizza á tvo vegu



Humarpizza á grilli

Ég var að gera smá tilraunir með humarpizzu á dögunum og hér hafið þið afraksturinn af því besta! Humarpizzur eru nefnilega oft aðeins með hvítlauksolíu/smjöri en stundum pizzasósu svo ég gerði með bæði og get ómögulega sagt hvor var betri því báðar voru dásamlegar!

Mmm…

humarpizza

Humarpizza með hvítlauksbotni

  • 1 x pizzadeig
  • 3 msk. Garlic Spread frá Stonewall Kitchen
  • Rifinn ostur
  • 1 lúka Mozzarellaperlur
  • Um 200 g humarhalar (salt + pipar)
  • Pizzakrydd (Herby garlic) frá Urban Accents
  • Hvítlauksolía frá Stonewall Kitchen
  • 1 lúka klettasalat
  1. Hitið ofn í 220°C.
  2. Mótið um 12 tommu pizzu úr deiginu og smyrjið Garlic Spread yfir botninn.
  3. Setjið næst vel af osti og dreifið úr Mozzarella perlunum.
  4. Þerrið humarhalana vel og kryddið með salti og pipar, raðið yfir ostinn.
  5. Kryddið vel með pizzakryddinu og bakið í um 15 mínútur í ofninum (skemur ef þið eruð að nota pizzaofn).
  6. Toppið með hvítlauksolíu og klettasalati þegar úr ofninum er komið.
Humarpizza með hvítlauk

Humarpizza með tómötum

  • 1 x pizzadeig
  • 3 msk. pizzasósa frá Stonewall Kitchen
  • Rifinn ostur
  • 1 lúka Mozzarellaperlur
  • Um 200 g humarhalar (salt + pipar)
  • Um 8 piccolo tómatar
  • Pizzakrydd (Herby garlic) frá Urban Accents
  • 4 tsk. basilpestó frá Stonewall Kitchen
  • Hvítlauksolía frá Stonewall Kitchen
  • Basilíka til skrauts
  1. Hitið ofn í 220°C.
  2. Mótið um 12 tommu pizzu úr deiginu og smyrjið pizzasósunni yfir botninn.
  3. Setjið næst vel af osti og dreifið úr Mozzarella perlunum.
  4. Þerrið humarhalana vel og kryddið með salti og pipar, raðið yfir ostinn.
  5. Skerið tómatana niður og dreifið yfir humarinn.
  6. Kryddið vel með pizzakryddinu og bakið í um 15 mínútur í ofninum (skemur ef þið eruð að nota pizzaofn).
  7. Toppið með hvítlauksolíu og basilíku þegar úr ofninum er komið.
Humarpizza uppskrift

Svo góðar!

Humarpizza
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun