Krönsí súkkulaðimolar



⌑ Samstarf ⌑
rice krispies bitar

Ef þig vantar eitthvað súper einfalt og gott fyrir næsta hitting, afmæli eða hvað eina, þá eru þetta molar sem þú vilt prófa!

Mmm…

súkkulaðimolar

Krönsí súkkulaðimolar

Um 30 stykki

  • 2 pokar af Síríus suðusúkkulaðidropum (300 g)
  • 1 msk. kókosolía
  • 1 msk. hnetusmjör
  • 130 g Rice Krispies
  • 50 g saltstangir (brotnar niður)
  • 1 poki Síríus súkkulaðiperlur (150 g)
  1. Bræðið súkkulaðidropa og kókosolíu saman og hrærið síðan hnetusmjörinu saman við.
  2. Blandið Rice Krispies, saltstöngum og súkkulaðiperlum saman við súkkulaðiblönduna og hrærið saman með sleikju.
  3. Setjið um eina matskeið af blöndu á bökunarpappír fyrir hvern mola og setjið í kæli í að minnsta kosti 30 mínútur áður en þeirra er notið.
  4. Molarnir geymast síðan best í ísskáp í loftþéttu íláti.
hrískökur uppskrift

Síríus súkkulaðidroparnir henta vel í þessa uppskrift en það má einnig nota klassískt Síríus suðusúkkulaði ef þið viljið frekar.

krönsí nammi
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun