Nauta ragú pasta



⌑ Samstarf ⌑
gott pasta

Hægeldað nautakjöt er eitt það allra besta og hér er það parað með tagliatelle og útkoman er algjörlega stórkostleg.

Namm!

ragú pasta

Nauta ragú pasta

Fyrir um 5 manns

  • 700 g nauta chuck eða annað slíkt
  • 1 laukur
  • 150 g gulrætur
  • 4 hvítlauksrif
  • 2 dósir hakkaðir tómatar (800 g)
  • 2 msk. Hunts tómatpúrra
  • 200 ml Muga rauðvín
  • 400 ml vatn
  • 3 msk. Oscar fljótandi nautakraftur
  • 3 greinar ferskt timian
  • 3 lárviðarlauf
  • Ólífuolía til steikingar
  • Salt og pipar
  • 500 g DeCecco tagliatelle
  • Hvítlauksbrauð
  • Parmesanostur
  1. Byrjið á því að skera kjötið í 2-3 bita til að flýta fyrir eldun. Steikið síðan upp úr ólífuolíu og kryddið með salti og pipar, brúnið vel allar hliðar.
  2. Takið kjötið þá úr pottinum og bætið ólífuolíu á hana á meðalhita, saxið lauk og skerið niður gulrætur og steikið í um 5 mínútur upp úr olíunni, kryddið eftir smekk.
  3. Bætið hvítlauknum saman við í lokin og steikið í um eina mínútu til viðbótar, bætið þá rauðvíni í pottinn ásamt tómatpúrru, hökkuðum tómötum, vatni, nautakrafti, timiangreinum og lárviðarlaufum.
  4. Blandið öllu saman og náið upp suðunni að nýju, bætið kjötinu aftur í pottinn og lækkið síðan hitann alveg niður og leyfið að malla í um 2 klukkustundir.
  5. Takið þá kjötið uppúr og tætið það niður með tveimur göfflum. Veiðið timiangreinar og lárviðarlauf úr pottinum og setjið tætta kjötið aftur í hann, blandið vel og leyfið að malla í um 20 mínútur til viðbótar á lágum hita.
  6. Sjóðið á meðan tagliatelle upp úr vel söltu vatni og hitið hvítlauksbrauð.
  7. Færið tagliatelle síðan yfir í pottinn með kjötinu og blandið varlega saman og njótið með hvítlauksbrauði, parmesanosti og rauðvíni.
pasta uppskrift

Mæli með að þið prófið þennan rétt!

pastaréttur uppskrift

Þetta er klárlega hugmynd að „sunnudagssteik“!

nauta ragú

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun