Pasta-lasagna



⌑ Samstarf ⌑
hvað á að vera í matinn

Það er gaman að útbúa lasagna á þennan hátt, ef lasagna má þetta heita, hahaha! Allir sem þennan rétt smökkuðu voru hrifnir af honum og ég myndi segja þetta væri hinn fullkomni hversdagsmatur.

Mmm…

fljótlegur kvöldmatur

Pasta-lasagna

Fyrir 6-8 manns

  • 900 g nautahakk
  • 400 g DeCecco penne pasta
  • 1 x Filippo Berio pastasósa með basil (2 x 340 g)
  • 150 g Philadelphia rjómaostur
  • Rifinn ostur
  • 1 laukur
  • 3 hvítlauksrif
  • Salt, pipar og oregano
  • Ólífuolía til steikingar
  • Parmareggio Parmesan ostur
  1. Steikið lauk stutta stund og bætið þá hakki og hvítlauk saman við, steikið og kryddið eftir smekk.
  2. Sjóðið pasta al dente í vel söltu vatni á meðan.
  3. Hellið pastasósum yfir hakkið og kryddið meira ef ykkur finnst þurfa og næst pastanu þegar það er tilbúið.
  4. Takið til stórt eldfast mót eða tvö minni, smyrjið að innan með matarolíu.
  5. Hitið ofninn í 190°C.
  6. Hellið fyrra lagi af hakkblöndu í formið, setjið vel af rifnum osti og nokkrar klípur af rjómaosti hér og þar yfir.
  7. Endurtakið og toppið með vel af rifnum osti, bakið í um 20 mínútur eða þar til osturinn gyllist.
  8. Njótið sem fyrst og gott er að hafa ferskt salat og hvítlauksbrauð með þessum rétti.
kvöldmatarhugmyndir

Þessi pastasósa er virkilega góð og notaði ég tvær krukkur í réttinn!

matur á virkum degi

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun