Mexíkósúpa á núlleinni



⌑ Samstarf ⌑
mexíkósúpa

Ég elska þegar ég get stytt mér leið í að útbúa eitthvað undurljúffengt, fljótlegt og hollt! Mexíkósúpa er eitthvað sem slær alltaf í gegn og með því að nota tilbúna eldgrillaða kjúklinginn frá Hagkaup verður súpugerðin leikur einn!

Þetta verður ekki mikið einfaldara!

mexíkó kjúklingasúpa

Mexíkósúpa á núlleinni

Fyrir 4-6 manns

  • 1 x eldgrillaður kjúklingur frá Hagkaup
  • 1 rauð paprika
  • ½ laukur
  • 400 g hakkaðir tómatar
  • 250 g salsasósa
  • 500 ml vatn
  • 200 g rjómaostur
  • 250 g rjómi
  • Salt, pipar, hvítlauksduft
  • Kjötkraftur
  • Ólífuolía
  • Sýrður rjómi
  • Nachos flögur
  • Rifinn ostur
  1. Skerið/rífið kjúklinginn niður í bita.
  2. Skerið papriku í strimla og saxið lauk, steikið upp úr ólífuolíu og kryddið eftir smekk.
  3. Bætið öðrum hráefnum í pottinn þegar grænmetið mýkist, hrærið vel saman og leyfið aðeins að malla.
  4. Að lokum fer rifni kjúklingurinn saman við.
  5. Njótið súpunnar með því að toppa hana með sýrðum rjóma, rifnum osti og nachosflögum.
kjúklingasúpa með snakki

Allt hráefni í þessa uppskrift fæst í Hagkaup!

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun