Um daginn var ég í smá tilraunastarfsemi með brúna banana sem lágu á borðinu. Þetta var útkoman svo ég skrifaði þetta niður á post-it miða og setti í tölvuna. Næst þegar ég átti brúna banana ákvað ég því að nú færi þetta hingað inn fyrir ykkur svo gjörið svo vel, bestu súkkulaðimöffins lífs ykkar eru mættar!
Mmmm….

Banana möffins
Um 15 stykki
- 130 g púðursykur
- 2 egg
- 100 g brætt smjör
- 3 þroskaðir bananar (stappaðir)
- 2 tsk. vanilludropar
- 140 g hveiti
- 40 g bökunarkakó
- 1 tsk. matarsódi
- 1 tsk. lyftiduft
- 1 tsk. kanill
- ½ tsk. salt
- 120 g Síríus suðusúkkulaði (gróft saxað)
- Síríus suðusúkkulaðidropar
- Hitið ofninn í 175°C.
- Klæðið muffinsform að innan með pappaformum.
- Þeytið saman púðursykur og egg þar til létt og ljóst.
- Bætið þá bræddu smjöri, banönum og vanilludropum saman við og blandið saman.
- Þá má setja þurrefnin saman við og hræra.
- Að lokum fer saxað suðusúkkulaði saman við og gott að blanda því saman við með sleikju.
- Skiptið í muffinsformin og toppið með nokkrum suðusúkkulaðidropum.
- Bakið í um 15 mínútur.

Síríus suðusúkkulaði gerir lífið einfaldlega betra!



































