Kjúklingasalat með mangó- chilisósu



⌑ Samstarf ⌑
kjúklingasalat uppskrifft

Hér kemur einstaklega djúsí, ferskt og gott salat með nóg af krönsi! Ég elska japanskt kjúklingasalat með ristuðum núðlum og þegar ég var að vinna í World Class í Laugum í gamla daga þá var alltaf svo ótrúlega gott kjúklingasalat þar með mangó-chili dressingu á Laugar Café svo út frá þessum tveimur hugmyndum kom útfærslan af þessu salati hér fyrir ykkur!

Mmm…..

kjúklingasalat með mangósósu

Kjúklingasalat með mangó- chilisósu

Fyrir um 5 manns

Kjúklingur og salat

  • 1 kg Rose Poultry kjúklingalundir (um 1,5 poki)
  • ½ flaska Caj P grillolía (Honey)
  • ½ Iceberg haus
  • 3 lúkur klettasalat
  • ½-1 rauðlaukur
  • 180 g piccolo tómatar
  • 2 lúkur vínber
  • 250 g jarðarber
  • 1 x mangó
  • 1 krukka fetaostur
  • 170 g ristaðar núðlur
  1. Byrjið á að útbúa mangó- chilisósuna (sjá uppskrift að neðan), hægt er að gera hana líka deginum áður og geyma í kæli.
  2. Veltið kjúklingalundunum upp úr Caj P grillolíunni, geymið i kæli og undirbúið salatið á meðan.
  3. Brjótið núðlurnar niður og ristið á heitri pönnu, hrærið vel á meðan og færið síðan yfir á disk þegar þær byrja að brúnast og leyfið að kólna.
  4. Skerið grænmeti og ávexti niður og raðið á fat.
  5. Grillið kjúklingalundirnar og raðið síðan þeim ásamt ristuðum núðlum og fetaosti yfir salatið.
  6. Toppið með mangó- chilisósu og hafið síðan meira af henni til hliðar til að bera fram með salatinu.

Mangó- chilisósa uppskrift

  • 2 x mangó (mjúkt og þroskað)
  • 2 cm engiferrót (rifin)
  • 3 msk. lime safi
  • 3 msk. hrísgrjónaedik
  • 6 msk. hlynsíróp
  • 1-3 tsk. sambal oelek chilimauk (eftir smekk)
  1. Setjið öll hráefni saman í blandarann og maukið þar til slétt mangósósa hefur myndast.
  2. Geymið í kæli fram að notkun.
  3. Sósan geymist vel í kæli í nokkra daga og er góð með ýmsum öðrum mat og ostum.
djúsí kjúklingasalat

Grillaður kjúklingur í kjúklingasalat getur ekki klikkað!

gott kjúklingasalat

Mmmm….

kjúklingasalat og hvítvín

Kjúklingasalat og hvítvín fer vel saman.

japanskt kjúklingasalat

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun