Hindberjasnúðar



⌑ Samstarf ⌑
Mjúkir snúðar með hindberjum

Hér eru á ferðinni guðdómlegir og undurmjúkir snúðar með hindberjafyllingu! Ég er mikið fyrir flöffí kanilsnúða en þessir voru eitthvað algjörlega nýtt og dásamlegt.

Mæli innilega með að þið prófið þessa útfærslu!

Snúðar með hindberjum

Hindberjasnúðar

12 stykki

Deig fyrir snúða

  • 80 g smjör (+ 50 g brætt fyrir penslun)
  • 180 ml nýmjólk
  • 120 ml vatn
  • 60 g sykur
  • 1 pk þurrger (um 12g)
  • 630 g hveiti
  • 1 tsk. salt
  • 1 egg
  • 2 tsk. vanilludropar
  1. Bræðið smjörið í potti og bætið mjólk og vatni saman við þegar bráðið. Hrærið vel saman og takið af hitanum. Blandan ætti að vera volg, ef hún verður of heit þá má hella henni í annað ílát og leyfa henni að kólna aðeins niður.
  2. Hellið þá sykri og þurrgeri saman við, hrærið vel og leyfið að standa á meðan annað er undirbúið.
  3. Setjið hveiti og salt í hrærivélarskálina og setjið krókinn á.
  4. Hellið næst gerblöndunni saman við og bætið eggi og vanilludropum næst saman við.
  5. Hnoðið í nokkrar mínútur og færið yfir í skál sem búið er að pensla með olíu að innan.
  6. Veltið deigkúlunni upp úr olíunni, plastið og leyfið að hefast í 1,5 klukkustund.
  7. Setjið á meðan hindberin fyrir fyllinguna (sjá að neðan) inn í frysti).
  8. Rúllið deiginu síðan út í um 40 x 50 cm og setjið á það fyllinguna.
  9. Rúllið því næst upp, skerið í 12 einingar og raðið í vel smurt skúffukökuform (um 25 x35 cm) og hefið að nýju í eina klukkustund.
  10. Smyrjið með bræddu smjöri og bakið síðan við 175° í 25-30 mínútur eða þar til snúðarnir verða vel gylltir.
  11. Kælið aðeins niður áður en þið setjið rjómaostatoppinn á.

Fylling

  • 250 g Driscolls hindber (fryst í um klukkustund)
  • 150 g sykur
  • 2 tsk. vanillusykur
  • 1 tsk. kartöflumjöl
  1. Hrærið öllu saman og smyrjið yfir útflatt deigið og rúllið upp.

Rjómaostatoppur

  • 80 g Philadelphia rjómaostur við stofuhita
  • 50 g smjör (brætt)
  • 200 g flórsykur
  • 30 ml nýmjólk
  • 2 tsk. vanilludropar
  • Driscolls hindber til skrauts
  • Saxað hvítt súkkulaði til skrauts
  • Pískið allt saman nema hindberin og súkkulaðið. Smyrjið yfir snúðana og toppið með hindberi og smá hvítu súkkulaði.
Hindberjasnúðar

Driscolls hindberin eru alltaf best!

Hindberjasnúðar

Svo krúttlegir, fallegir og góðir!

Góðir snúðar

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun