Hrekkjavöku draugadessert



⌑ Samstarf ⌑

Það þarf ekki að vera flókið til að vera draugalegt! Þessi undursamlega skyrkaka með brownie bitum er alveg dásamlega góð og ég mæli með fyrir næsta hrekkjavökupartý!

Spúkí og skemmtileg!

Hrekkjavöku draugadessert

4-6 glös/krukkur

Hráefni

  • Brownies (ykkar uppáhalds eða keypt tilbúin)
  • Jarðarberjasósa (sjá uppskrift að neðan)
  • Vanilluskyr-fylling (sjá uppskrift að neðan)
  • Sykuraugu

Jarðarberjasósa

  • 200 g fersk jarðarber
  • 5 msk. sykur
  1. Blandið sykri og jarðarberjum saman í pott og náið upp suðunni.
  2. Leyfið blöndunni að malla þar til sykurinn leysist upp og jarðarberin mýkjast (nokkrar mínútur).
  3. Kælið áður en þið notið.

Vanilluskyr-fylling

  • 2 x Ísey vanilluskyr (2 x 170g)
  • 500 ml rjómi
  1. Þeytið rjómann og vefjið saman við skyrið með sleikju þar til slétt áferð myndast.

Samsetning

  1. Skerið brownies í munnstóra bita og leggið í botninn á krukkunni.
  2. Setjið vanilluskyr-fyllingu yfir og næst um matskeið af jarðarberjasósu.
  3. Endurtakið brownies og vanilluskyr-fyllingu.
  4. Skreytið með sykuraugum.

Mæli með að þið prófið!

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun