Brookies eru blanda af Brownies og Cookies sem er auðvitað algjörlega himnesk tvenna! Eina íslenska orðið sem mér datt í hug eru „Brökur“, blanda af brúnka og kökur en ég veit ekki alveg með það, hahaha!
Svoooo gott!

„Brookies“
Smákökudeig
- 120 g smjör
- 100 g púðursykur
- 50 g sykur
- 2 egg
- 2 tsk. vanilludropar
- 190 g hveiti
- 1 tsk. matarsódi
- 150 g Síríus suðusúkkulaðidropar
- Brúnið smjörið og leggið til hliðar.
- Blandið báðum tegundum af sykri saman í hrærivélarskálinni og bætið saman við brúnuðu smjörinu, eggjum og vanilludropum.
- Næst má hræra hveiti og matarsóda saman við og loks vefja súkkulaðidropunum saman við með sleikju.
Brúnkudeig/Brownies
- 130 g smjör
- 200 g Síríus suðusúkkulaði
- 200 g púðursykur
- 2 egg
- 1 tsk. vanilluropar
- 80 g hveiti
- 1 tsk. lyftiduft
- ½ tsk. salt
- 2 msk. bökunarkakó
- 80 g Síríus suðusúkkulaðidropar
- Bræðið smjör og suðusúkkulaði saman, leggið til hliðar.
- Hrærið púðursykri, eggjum og vanilludropum saman í hrærivélarskálinni og hellið súkkulaðiblöndunni næst þar saman við.
- Blandið þá þurrefnunum saman við í nokkrum skömmtum og skafið niður á milli.
Samsetning
- Hitið ofninn í 175°C og klæðið ferkantað kökuform (um 25×25 cm) að innan með bökunarpappír, spreyið með matarolíuspreyi.
- Hellið brúnkudeiginu í botninn og setjið síðan smákökudeigið í klípum jafnt yfir það allt.
- Bakið í um 50 mínútur eða þar til prjónn kemur út með smá kökumylsnu á endanum en ekki blautu deigi.
- Stráið súkkulaðidropunum yfir um leið og kakan kemur úr ofninum. Kælið og skerið síðan niður í bita.

Suðusúkkulaði gerir lífið einfaldlega betra!



































