Cordon Bleu



⌑ Samstarf ⌑
Cordon Bleu kjúklingur

Ég veit ekki af hverju ég hef ekki sett svona uppskrift hingað inn en við Hemmi vorum dugleg að útbúa svona í upphafi búskapar, síðan er smá eins og ég hafi gleymt þessu og ekki gert ansi lengi! Ég elska að vinna svona gamaldags og góðar uppskriftir og mikið er ég glöð að þessi sé komin hingað fyrir ykkur að njóta!

Mmmm….þetta er nokkrum númerum of gott!

Mömmumatur

Cordon Bleu

4 bringur og meðlæti

Cordon Bleu kjúklingabringur

  • 4 stórar kjúklingabringur
  • 8 skinkusneiðar
  • 8 ostsneiðar
  • 2 egg
  • Hveiti
  • Panko rasp
  • Smjör og ólífuolía til steikingar
  • Salt + pipar
  1. Skerið „vasa“ í bringurnar til að koma skinku+ osti fyrir þar inní.
  2. Rúllið 2 ostsneiðum inn í 2 skinkusneiðar og komið fyrir í vasanum. Ef hann er mjög opinn má setja tannstöngla við endann til að loka betur en ef þið skerið ekki alla leið á það ekki að þurfa. Saltið og piprið bringurnar.
  3. Pískið egg í eina skál, setjið hveiti í aðra og Panko rasp í þá þriðju.
  4. Veltið hverri bringu fyrst upp úr hveiti, næst pískuðu eggi og loks Panko raspi.
  5. Steikið upp úr vel af smjöri í bland við ólífuolíu þar til þær brúnast á báðum hliðum, færið yfir í eldfast mót og bakið með kartöflunum síðustu 15-20 mínúturnar.
  6. Berið fram með rósmarín kartöflum, grænum ORA baunum og brúnuðu smjöri.

Rósmarín kartöflur

  • 1 kg kartöflur
  • Ólífuolía
  • Salt, pipar, hvítlauksduft
  • 1 msk. ferskt rósmarín – saxað
  1. Hitið ofninn í 200°C.
  2. Skerið kartöflurnar niður og veltið upp úr olíu og kryddum.
  3. Bakið í ofninum í 30-45 mínútur (eftir stærð bitanna) þar til kartöflurnar mýkjast.

Meðlæti

  • 150 g smjör
  • 1 dós grænar ORA baunir
  1. Brúnið smjörið með því að hita það á meðalhita þar til það byrjar að dökkna og karamellulykt myndast.
  2. Hitið baunirnar.
Gamaldags uppskriftir

ORA fær mig til að halda í „mömmumatinn“ og vilja gera meira í þeim dúr svo nú er spurning hvað verður næst fyrir valinu!

Cordon Bleu uppskrift

Mæli með!

Cordon Bleu
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun