Rjómaterta með kokteilávöxtum



⌑ Samstarf ⌑
Rjómaterta með kokteilávöxtum

Ollý tengdamamma á heiðurinn af þessari uppskrift. Hér er á ferðinni klassísk rjómaterta með kokteilávöxtum nema hún setur líka búðingsduft í rjómann og það gerir þessa köku bragðmeiri og skemmtilegri heldur en bara með þeyttum rjóma að mínu mati.

Mmm….

Rjómaterta með ávöxtum

Rjómaterta með kokteilávöxtum

Svampbotnar

  • 5 egg
  • 180 g sykur
  • 100 g hveiti
  • 60 g kartöflumjöl
  • 1 tsk. lyftiduft
  1. Hitið ofninn í 175°C.
  2. Klippið bökunarpappír í botninn á 2 x 20 cm kökuformum og spreyið vel að innan með matarolíuspreyi.
  3. Þeytið saman egg og sykur þar til létt og ljós blanda myndast.
  4. Sigtið hveiti, kartöflumjöl og lyftiduft í blönduna og hrærið mjög rólega saman.
  5. Skiptið jafnt niður í formin og bakið í 18-20 mínútur.
  6. Kælið botnana áður en þið setjið fyllinguna á milli.

Fylling

  • 500 ml rjómi
  • 2 msk. vanillu búðingsduft
  • 2 msk. súkkulaði búðingsduft
  • 1 dós Del Monte kokteilávextir (420 g)

  1. Léttþeytið saman rjóma og báðar tegundir af búðingsdufti (blandan mun þykkna meira eftir þeytingu þegar búðingurinn tekur sig).
  2. Hellið safanum af ávöxtunum (geymið hann) og blandið þeim saman við rjómablönduna.
  3. Setjið síðan um helming safans úr dósinni yfir neðri botninn til að bleyta í honum.
  4. Næst má setja helminginn af rjómablöndunni yfir botninn og slétta úr og endurtaka síðan botn, safi, fylling.

Skreyting

  • 350 ml rjómi
  • 1 dós Del Monte kokteilávextir (420 g)
  • 20 g dökkt súkkulaði

  1. Þeytið rjómann og setjið í sprautupoka með stórum stjörnstút.
  2. Sprautið línur þétt upp hliðarnar aðeins inn á toppinn og lokið svo öllum „endunum“ með því að sprauta fallegan kant yst á kökuna.
  3. Hellið safanum af ávöxtunum og skreytið með því að setja ávextina yfir toppinn.
  4. Saxið að lokum súkkulaðið og dreifið yfir ávextina.
Gamaldags rjómaterta

Kokteilávextirnir frá Del Monte eru þeir allra bestu og spila lykilhlutverk í þessari tertu ásamt safanum úr dósinni.

Hnallþóra rjómaterta

Það má sleppa því að nota búðingsduft og hafa aðeins þeyttan rjóma ef þið kjósið heldur.

Rjómaterta
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun