Bananarúlla



⌑ Samstarf ⌑
rúlluterta uppskrift

Hér kemur ein klassísk og góð! Ég man þegar ég var alltaf að kaupa svona bananarúllu í Bakarameistaranum í denn og ekki spyrja mig af hverju ég hef ekki prófað að útbúa slíka fyrr en nú. Það var klárlega minna mál en ég hafði ímyndað mér svo nú er komið að ykkur að prófa!

Svo mjúk og ljúffeng.

Bananarúlla

Bananarúlla uppskrift

Brúnn rúllutertubotn

  • 4 egg
  • 170 g sykur
  • 70 g kartöflumjöl
  • 3 msk. bökunarkakó + meira til að sigta yfir
  • 2 tsk. lyftiduft
  • Matarolíusprey
  1. Hitið ofninn í 220°C.
  2. Klæðið ofnskúffu að innan með bökunarpappír og spreyið vel af matarolíuspreyi á pappírinn.
  3. Þeytið saman sykur og egg þar til létt og ljós blanda myndast.
  4. Blandið saman kartöflumjöli, kakó og lyftidufti og sigtið saman við eggjablönduna, blandið varlega saman við með sleikju.
  5. Hellið blöndunni í ofnskúffuna og dreifið jafnt úr.
  6. Bakið í 8 mínútur og takið úr ofninum.
  7. Sigtið smá bökunarkakó yfir toppinn á kökunni, leggið annan bökunarpappír ofan á hana og næst stórt bretti og snúið kökunni við.
  8. Flettið bökunarpappírnum sem var á botninum en er nú á toppinum varlega af.
  9. Rúllið kökunni varlega upp með hinn bökunarpappírinn inn í meðan hún er enn heit og leggið viskastykki þétt að henni allan hringinn (til að halda rakanum í henni).
  10. Leyfið henni síðan að kólna svona niður í stofuhita, rúllið varlega út aftur og útbúið fyllinguna.

Fylling

  • 400 ml rjómi
  • 3 msk. flórsykur
  • 1 vanillustöng
  • 2 bananar
  • 1 msk. sítrónusafi
  1. Þeytið rjóma, flórsykur og innan úr vanillustöng þar til stífþeytt.
  2. Stappið bananana, kreistið yfir þá sítrónusafa og blandið næst varlega saman við rjómann með sleikju.
  3. Smyrjið innan á rúllutertubotninn og rúllið varlega upp, færið yfir á kökudisk/bretti og útbúið hjúpinn.

Hjúpur

  • 150 g Síríus suðusúkkulaði (+ meira til að raspa yfir í lokin)
  • 70 ml rjómi
  1. Saxið niður suðusúkkulaði og hitið rjómann að suðu.
  2. Hellið rjómanum yfir saxað súkkulaðið í skál og pískið saman þar til glansandi súkkulaðhjúpur myndast.
  3. Smyrjið súkkulaðihjúpnum yfir kökuna allan hringinn og þurrkið síðan hringinn það sem hefur sullast niður á diskinn/brettið.
  4. Raspið suðusúkkulaði yfir til skrauts, hægt að nota rifjárn, ostaskera eða annað slíkt.
bananakaka

Súkkulaðihjúpurinn fullkomnar þessa köku!

Banana rúlluterta
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun