Það er algjör snilld að geta útbúið svona kakóbombur heima og þvílíka lukkan hjá litlu minni þegar hún kom heim og fékk að prófa að útbúa sér kakóbombukakó! Mæli sannarlega með að þið föndrið ykkur svona fyrir næsta jólahitting, get lofað því að þetta mun slá í gegn hjá ungum sem öldnum.
Svo sniðugt og ljúffengt!

Kakóbombur
6 stykki
- 300 g dökkt súkkulaði
- 3 x poki af Swiss Miss Dark Chocolate kakódufti
- Litlir sykurpúðar
- 4-6 jólastafir (candy canes)
- Lítil pappamál
- Bræðið súkkulaðið og skiptið því niður í pappamálin, skiljið samt aðeins af því eftir til að festa jólastafinn, setja brjóstsykur á bríkina og yfir sykurpúðana í lokin (gott að skilja eftir eins og ¼ af súkkulaðinu).
- Rúllið brædda súkkulaðinu í hliðarnar á formunum nokkrum sinnum þar til súkkulaðið fer að þykkna og rennur illa (tekur 15-20 mínútur með smá pásum á milli). Þetta er gert til að þykkja aðeins hliðarnar á bollanum svo hann brotni ekki þegar pappamálið er losað.
- Frystið næst súkkulaðibollana í um 15 mínútur og losið pappaformin síðan utan af.
- Myljið 2 jólastafi niður og dýfið bríkinni á hverjum súkkulaðibolla aðeins í afganginn af brædda súkkulaðinu og veltið upp úr muldum brjóstsykrinum.
- Næst má setja um ½ teskeið af súkkulaði í bollann miðjan og festa jólastaf í miðjuna (það má líka sleppa því og fara áfram í skref 6 ef þið viljið sleppa því að nota jólastaf).
- Skiptið nú hverjum Swiss Miss poka niður í tvö glös og endurtakið þar til kakóduft er komið í alla bolla.
- Fyllið upp í með litlum sykurpúðum og þjappið þeim vel niður í kakóduftið, setjið síðan smá brætt súkkulaði yfir sykurpúðana til að festa þetta allt saman.
- Leyfið kakóbombunum að storka og geymið í poka/plasti þar til á að nota þær.
- Hellið heitri mjólk í stóran bolla og setjið eina kakóbombu útí og hrærið saman þar til súkkulaðið er bráðið.

Mæli með að nota „Dark Chocolate“ kakóið frá Swiss Miss í þessar bombur.

Litlu pappaformin fékk ég í kökudeildinni í Hagkaup, þetta nokkurs konar bollakökuform nema stífari og minni.

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan.


































