Einföld og ljúffeng, hér þarf ekki að segja neitt meira!
Kanilkaka með glassúr
Kanilkaka uppskrift
- 200 g smjör við stofuhita
- 120 g sykur
- 100 g púðursykur
- 3 egg
- 210 g hveiti
- 1 tsk. bökunarsódi
- 1 tsk. lyftiduft
- 3 tsk. kanill
- ½ tsk. salt
- 300 ml súrmjólk
- Hitið ofninn í 170°C.
- Þeytið saman smjör og báðar tegundir af sykri.
- Bætið eggjunum saman við og skafið niður á milli.
- Næst má setja hveiti, bökunarsóda, lyftiduft, kanil og salt saman við ásamt súrmjólkinni.
- Hrærið vel saman og setjið í skúffukökuform (um 30×40) sem búið er að smyrja vel að innan eða klæða með bökunarpappír.
- Bakið í um 30 mínútur og kælið kökuna áður en þið setjið glassúr yfir.
Glassúr uppskrift
- 120 g brætt smjör
- 40 ml uppáhellt kaffi
- 2 tsk. vanilludropar
- 360 g flórsykur
- 3 msk. bökunarkakó
- 1 tsk. kanill
- Setjið allt saman í skál og pískið saman, hellið yfir kælda kökuna.



































