Smákökur með karamellu



⌑ Samstarf ⌑
smákökur uppskrift

Fyrsti í aðventu og þá er við hæfi að setja inn eins smáköku-uppskrift! Þessi er dásamlega góð og ég mæli sannarlega með því að þið prófið hana fyrir jólin.

Mmm….

smákökur með súkkulaðibitum og karamellu

Smákökur með karamellu

Um 24 stk

  • 150 g smjör við stofuhita
  • 200 g púðursykur
  • 1 egg
  • 2 tsk. vanilludropar
  • 230 g hveiti
  • 1 tsk. matarsódi
  • ½ tsk. salt
  • 150 g Síríus súkkulaðidropar (dökkir)
  • 100 g Síríus karamellukurl
  • 1 poki Nóa Töggur
  • 1 msk. rjómi
  • 80 g Síríus suðusúkkulaði
  1. Hitið ofninn í 175°C og setjið bökunarpappír í tvær ofnskúffur.
  2. Þeytið saman sykur og smjör þar til létt og ljóst.
  3. Bætið eggi og vanilludropum saman við og þeytið aðeins áfram.
  4. Blandið þá hveiti, matarsóda og salti saman í skál og hrærið saman við á lágum hraða.
  5. Að lokum fara súkkulaðidropar og karamellukurl saman við og blandið saman.
  6. Setjið um 1 msk. af deigi á plötuna fyrir hverja köku og bakið í um 15 mínútur.
  7. Bræðið saman rjóma og töggur þar til karamellusósa myndast og bræðið suðusúkkulaðið í annarri skál.
  8. Þegar kökurnar koma úr ofninum má setja bæði karamellu og brætt súkkulaði yfir hverja köku.
  9. Kælið kökurnar síðan niður þar til súkkulaðið harðnar og karamellan tekur sig aðeins.
smákökur fyrir jólin

Töggur + rjómi = fullkomin karamellusósa

jólabakstur
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun