Jólagjafahugmyndir



⌑ Samstarf ⌑
jólaborðið

Í Húsgagnahöllinni er til endalaust af fallegri smávöru. Þar má sannarlega finna eitthvað fallegt í jólapakkana og hér setti ég saman forréttaborð á fallegum brettum, diskum og bökkum í bland við krúttlegt jólaskraut. Það er nefnilega þannig að sama hvað verið er að bjóða upp á, þá verður verður það fallegra ef það er borið fram ásamt fallegri smávöru.

Mér finnst best að raða fyrst öllu á borðið áður en ég undirbý veitingarnar. Síðan set ég post-it miða á hvern hlut og skrifa hvað á að fara á hann. Þannig sé ég þetta betur fyrir mér og átta mig á því hvort það þurfi að bæta við eða taka af áður en uppröðun klárast. Einnig þykir mér fallegt að blanda saman litum og efnivið, hafa bretti í bland við kökudiska á fæti og þess háttar. Blómavasar, kertastjakar og annað skraut má síðan nota til að fylla upp í rýmið á borðinu.

jólaskraut

Shishi stjarna svo falleg sem borðskraut en hana má líka hengja upp!

smáréttir

ASA bakki – hnota. Ég ELSKA fallega bakka og þennan verð ég að eignast!

ávaxtaskál

ASA skál á fæti 21 cm, þessa má nota undir ávexti, snakk eða hvað sem ykkur dettur í hug.

veisluréttir

ASA kökudiskur á tveimur hæðum. Þessi er æðislegur undir fallega hluti inn í eldhúsi þess á milli sem hann er notaður fyrir veitingar.

forréttir hugmyndir

Stuff Fusion bretti 12×40 cm, fullkomið fyrir smárétti, ostabakka og annað.

blómavasi

Light & Living Owl blómavasi.

kökudiskur á fæti

ASA kökudiskur á fæti, 29 cm. Ég elska að nota kökudiska á fæti til að hækka upp veitingar á veisluborði.

svört skál

ASA skál á fæti, 14cm.

borðskreytingar

Shishi hangandi glerkúlur, svo fallegar á borðið en einnig til að hengja upp!

forréttir hugmyndir

Mæli með að þið kíkið í Húsgagnahöllina næst þegar ykkur vantar fallega gjöf!

Dúkurinn á myndinni er hringlóttur, 200 cm dúkur sem fæst einnig í Höllinni. Ég er með borð sem er 150 cm í þvermál, þeir eru einnig til 220 cm.

Allar þessar undursamlegu veitingar sem þið sjáið í færslunni fást síðan í Hagkaup. Þar er mikið úrval af tilbúnum forréttum sem hægt er að grípa með til að einfalda utanumhald fyrir veisluna!

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun