Súkkulaði- og heslihnetu ostakaka



⌑ Samstarf ⌑
Einfaldur eftirréttur

Ef ykkur vantar eitthvað einfalt og um leið afar ljúffengt, þá gæti þessi ostakaka verið það sem þið eruð að leita af!

Klárlega góður eftirréttur fyrir hátíðirnar.

ostakaka

Súkkulaði- og heslihnetu ostakaka

Uppskrift dugar í 6-8 glös

  • 16 x Oreo kexkökur
  • 60 g brætt smjör
  • 300 g Philadelphia rjómaostur við stofuhita
  • 80 g flórsykur
  • 1 krukka Nusica heslihnetusúkkulaði (400 g)
  • 2 tsk. vanilludropar
  • 400 ml þeyttur rjómi + 300 ml til skrauts
  • Jarðarber til skrauts
  1. Setjið Oreokex í matvinnsluvél/blandara og myljið niður þar til áferðin minnir á sand.
  2. Blandið brættu smjöri saman við kexmylsnuna og skiptið niður í glösin.
  3. Þeytið næst rjómaost, flórsykur, Nusica og vanilludropa saman þar til ljósbrún og jöfn blanda myndast.
  4. Vefjið þá saman við 400 ml af þeyttum rjóma og sprautið í glösin.
  5. Skreytið með þeyttum rjóma, smá Oreo mylsnu og jarðarberi.
súkkulaðismjör með heslihnetum

Nokkrum númerum of gott sko!

ostakaka með súkkulaðismjöri

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun